fbpx
Sunnudagur 13.júlí 2025
433Sport

Heitar umræður um mál Hareide – Sagði frá umræðu af skrifstofu KSÍ sem túlka má sem sneið

433
Mánudaginn 18. nóvember 2024 18:30

DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í íslenskum fótboltaheimi er fátt annað rætt en staða Age Hareide sem landsliðsþjálfara. Hefur þetta verið til umræðu í tæpan mánuð.

KSÍ er með uppsagnarákvæði í samningi sínum sem hægt er að nota á næstu dögum. Vanda Sigurgeirsdóttir og fyrrum stjórn sambandsins endursamdi við Hareide fyrr á þessu ári.

Ákveðið var að setja ákvæðið í samning Hareide þar sem vitað var að nýr formaður og stjórn væru að koma til starfa. Þorvaldur Örlygsson stýrir nú málum.

„Það verða endalaus samtöl eftir leikinn gegn Tyrkjum, ég kem á föstudegi og segi að það séu allir að setja þetta í eyrun á mér. Age er minn maður, Vanda hlustaði á Dr. Football,“ sagði Hjörvar Hafliðason í nýjasta þætti af hlaðvarpinu vinsæla.

„Hún reddaði besta gæjanum í giggið, Age hefur stuðning þjóðarinnar. Af hverju haldiði að þetta hafi farið svona mikið í umræðuna?.“

Jóhann Már Helgason sérfræðingur þáttarins lagði orð í belg. „Það er verið að segja að þetta sé út frá peningum, svo er það að hann sé ekki að sinna þessu nógu vel. EF við náum úrslitum gegn Wales, förum upp í efstu deild þá væri galið að reka hann.“

Íslenska liðið mætir Wales annað kvöld og sigur kemur liðinu í umspil um laust sæti í A-deild Þjóðadeildarinnar.

„Það var einhver þjálfari innan KSÍ sem sagði á skrifstofunni í haust, sagðist vera farin í sumarhúsið á Spáni og sagði að það væri hægt að ná í sig á Teams. Smá sneið,“ sagði Hjörvar og átti þar við þá gagnrýni um að Hareide hefði ekki sinnt starfinu nógu vel.

„Ef þetta eru peningar, þá sjálfsögðu. Ef þeir upplifa að hann sé búinn, að það sé ekki hægt að kreista fram meiri töfra. Gæinn tekur við hörmulegu dæmi, vinnur frábæra sigra. Spilum skemmtilegan fótbolta, þetta var góður leikur gegn Tyrkjum. Frábært lið og það var gaman á Laugardalsvelli,“ sagði Hjörvar einnig.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Staðfestir að hann hafi sigrað krabbameinið

Staðfestir að hann hafi sigrað krabbameinið
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Náðu myndbandi af stórstjörnunni sem var blindfullur á tónleikum

Náðu myndbandi af stórstjörnunni sem var blindfullur á tónleikum
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Þrjú ensk stórlið sögð horfa til Parísar – Samningslaus næsta sumar

Þrjú ensk stórlið sögð horfa til Parísar – Samningslaus næsta sumar
433Sport
Í gær

,,Við erum ekki Inter Milan eða Real Madrid“

,,Við erum ekki Inter Milan eða Real Madrid“
433Sport
Í gær

Elías Már til Kína

Elías Már til Kína
433Sport
Í gær

Var ásakaður um leti og metnaðarleysi og fær stuðning úr óvæntri átt – ,,Ég hef ekkert illt að segja“

Var ásakaður um leti og metnaðarleysi og fær stuðning úr óvæntri átt – ,,Ég hef ekkert illt að segja“
433Sport
Í gær

Manchester United þarf að keppa við peningana í Sádi

Manchester United þarf að keppa við peningana í Sádi
433Sport
Í gær

Stuðningsmenn Arsenal skilja lítið í kaupstefnu félagsins – Eze enn á óskalistanum

Stuðningsmenn Arsenal skilja lítið í kaupstefnu félagsins – Eze enn á óskalistanum