fbpx
Laugardagur 17.maí 2025
433Sport

Ríkharð saumaði að Audda Blö – „Ég verð að fá að vita þetta“

433
Miðvikudaginn 10. janúar 2024 19:32

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það hefur enn ekki verið slegið af borðinu að Óskar Örn Hauksson rífi fram takkaskóna með Íslands- og bikarmeisturum Víkings í sumar.

Óskar, sem er goðsögn í íslenskum fótbolta og þekktastur fyrir tíma sinn í KR, var í haust ráðinn styrktarþjálfari Víkings. Arnar Gunnlaugsson, þjálfari liðsins, var spurður að því í viðtali við Fótbolta.net á dögunum hvort það kæmi til greina að hann spilaði eitthvað með liðinu.

„Ég myndi ekki útiloka það. Hann var með á æfingu um daginn, var langbesti leikmaðurinn. Við erum ekki að horfa á það, það er ekki krafa um það, en ég myndi ekki útiloka það,“ sagði Arnar þá.

© 365 ehf / Ernir Eyjólfsson

Fjölmiðlamaðurinn og sparkspekingurinn Ríkharð Óskar Guðnason, Rikki G, var mættur í nýjasta þátt af Blökastinu og þar spurði hann Auðunn Blöndal út í stöðuna. Auðunn er mágur Óskars.

„Ég verð að fá að vita þetta. Er ekki bara Óskar Örn að fara að spila með Víkingum næsta sumar?“ spurði Ríkharð.

Auðunn telur hann allavega eiga skilið að fá að kveðja knattspyrnuvöllinn með stæl.

„Hann segir ekki. En Arnar Gunnlaugs sagði í viðtali að hann væri bestur á æfingum. Ef einhver á skilið alvöru kveðjuleik í þessari deild er það Óskar Örn Hauksson. Hann ætti að fá einn leik með allavega, ef það er einhver í Fossvoginum að hlusta. Einn leik á geitina,“ sagði Auddi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Drátturinn í bikarnum: Slegist um stoltið í Kópavogi – Valur fer til Eyja

Drátturinn í bikarnum: Slegist um stoltið í Kópavogi – Valur fer til Eyja
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

City óttast að Wirtz fari til Bayern og eru klárir með annað skotmark

City óttast að Wirtz fari til Bayern og eru klárir með annað skotmark
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Nike eyðir út auglýsingu – Birtu óvart myndir af nýrri Chelsea treyju

Nike eyðir út auglýsingu – Birtu óvart myndir af nýrri Chelsea treyju
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Ryan Reynolds ætlar að taka upp heftið í sumar – Reynir að kaupa fyrirliða Fulham

Ryan Reynolds ætlar að taka upp heftið í sumar – Reynir að kaupa fyrirliða Fulham
433Sport
Í gær

Haaland hjólar í alla sína samherja fyrir tímabilið

Haaland hjólar í alla sína samherja fyrir tímabilið
433Sport
Í gær

Skandall í uppsiglingu – Stjarna og þrír aðrir sakaðir um að dreifa barnaklámi

Skandall í uppsiglingu – Stjarna og þrír aðrir sakaðir um að dreifa barnaklámi