fbpx
Sunnudagur 14.desember 2025
433Sport

Páll Magnússon og fleiri þjóðþekktir einstaklingar agndofa yfir frumraun Fanneyjar í gær

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 6. desember 2023 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fanney Inga Birkisdóttir, lék frumraun sína í marki Íslands í gær þegar kvennalandsliðið vann frækinn 0-1 sigur á Dönum í Þjóðadeildinni. Fanney er aðeins 18 ára gömul.

Frammistaða hennar í leiknum hefur vakið mikla athygli en Fanney varði allt sem á markið kom. Fanney sem er fædd árið 2005 lék 22 af 23 leikjum Vals í sumar þegar liðið varð Íslandsmeistari.

Telma Ívarsdóttir sem varið hefur markið undanfarið var í leikbanni í gær en ljóst er að frammistaða Fanneyjar hefur búið til mikla samkeppni um stöðuna.

Páll Magnússon, fyrrum útvarpsstjóri og fjölmiðlamaður var af hrifin af frammistöðu Fanneyjar og skrifaði um hana á Facebook. Þjóðþekktir einstaklingar tóku í sama streng

„Þessi 18 ára stúlka, Fanney Inga Birkisdóttir, stóð í markinu í sigurleiknum gegn Dönum í kvöld. Ég held ég hafi aldrei séð betri frammistöðu hjá íslenskum markmanni í landsleik!,“ skrifar Páll Facebook.

Hann segist svo hafa skellt sér Íslendingabók í þeirri von um að Fanney væri náskyld sér, það er hún ekki. „Mér fannst hún svo rosalega góð að ég vildi helst vera frændi hennar. Fór í Íslendingabók – en því miður: Ég og afi hennar erum sjömenningar þannig að ég og hún erum skyld í 9. ættlið. Það er víst ekki hægt að vera mikið fjarskyldari á Íslandi,“ skrifar Páll Léttur.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar var hrifin af því sem hún sá. „Frábær!,“ skrifar Þorgerður og klappar fyrir kynsystur sinni.

Hinn virti lögfræðingur, Sigurður Guðni Guðjónsson var ánægður með frammistöðu Íslands. „Þetta er alveg rétt Palli. Karólína Lea var mögnuð svo og Glódís Perla. Sérstklega athyglisvert að skoða skot Karólínu, eins og hún hafi fengið kennslu hjá frænda sínum Gylfa,“ segir Sigurður.

Sigmundur Ernir Rúnarsson, fyrrum ritstjóri Fréttablaðsins segist aldrei hafa séð svona áður. „Besta byrjun sem ég hef séð,“ skrifar Sigmundur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Stefán segir stjórnarmann bersýnilega hafa komið sér undan að ræða málefnið – „Eins og það væri bara einhver verkaskipting og kæmi honum ekkert við“

Stefán segir stjórnarmann bersýnilega hafa komið sér undan að ræða málefnið – „Eins og það væri bara einhver verkaskipting og kæmi honum ekkert við“
433Sport
Í gær

Langskotið og dauðafærið – Stórsigur í vændum á Emirates?

Langskotið og dauðafærið – Stórsigur í vændum á Emirates?
433Sport
Í gær

Forsetinn biðlar til Real Madrid

Forsetinn biðlar til Real Madrid
433Sport
Í gær

Amorim gefst upp á Baleba og horfir norður í land

Amorim gefst upp á Baleba og horfir norður í land
433Sport
Í gær

Mikill viðsnúningur í rekstri Manchester United á milli ára – Farnir að skila hagnaði eftir niðurskurð

Mikill viðsnúningur í rekstri Manchester United á milli ára – Farnir að skila hagnaði eftir niðurskurð
433Sport
Í gær

Íþróttavikan: Stefán Pálsson fer um víðan völl

Íþróttavikan: Stefán Pálsson fer um víðan völl