
Ensku götublöðin hafa nú greint frá því hvað varð til þess að allt sauð upp úr eftir leik Arsenal og Manchester City á sunnudag.
Nicolas Jover, sem sér um föst leikatriði hjá Arsenal, lenti upp á kant við Kyle Walker eftir leik og skarst Erling Braut Haaland einnig í leikinn.
Nú er sagt að ástæðan fyrir þessu hafi verið sú að Jover neitaði að taka í hendur leikmanna og þjálara City eftir báða leiki liðanna á síðustu leiktíð, sem City vann.
Í þetta sinn vann Arsenal og var Jover meira en til í að taka í hendur á mönnum.
Þetta líkaði Walker ekki, að Jover myndi bara taka í hendur manna eftir sigurleik síns liðs.
Jover starfaði áður hjá City en gekk til liðs við Arsenal í desember 2021. Hann fór á góðum nótum frá bláliðum og því kom það þeim á óvart þegar hann neitaði að taka í hendur þeirra eftir leikina á síðustu leiktíð.
A closer look at the Kyle Walker vs Nicolas Jover (our set piece coach).
Heated moments always occur during these big games and luckily the situation was descalated quickly. pic.twitter.com/x7yITLI6Gv
— Arsenal Xtra (@Forever_AFC1) October 9, 2023