Hannes Þór Halldórsson hefur ákveðið að leggja hanskana á hilluna en hann rifti samningi sínum við Val í vetur.
Hannes hefur legið undir feldi síðustu vikur en hann hafði hafnað því að ganga í raðir Leiknis en var einnig orðaður við endurkomu í KR.
Hannes verður 38 ára á þessu ári en hann átti magnaðan feril með landsliði og félagsliðum. Margir telja hann besta markvörð í sögu Íslands.
„Eftir 17 ár í meistaraflokki og 31 ár í fótbolta er kominn tími á að leggja hanskana á hilluna,“ skrifar Hannes.
„Ég hef kynnst ógrynni af góðu fólki á þessum árum, unnið með mörgum frábærum þjálfurum, eignast vini fyrir lífstíð og upplifað ótrúlegar stundir. 10 tímabil í efstu deild, 77 landsleikir, 2 stórmót, 3 Íslandsmeistaratitlar, 2 bikarmeistaratitlar og 6 ár í atvinnumennsku er eitthvað sem mig óraði ekki fyrir að upplifa í mínum villtustu draumum. Fjölskylda, liðsfélagar, þjálfarar, stuðningsfólk og allir sem hafa hjálpað mér à leiðinni, takk fyrir mig.“
Tilþrif af ferli Hanensar eru hér að neðan.