fbpx
Miðvikudagur 10.desember 2025
433Sport

Sjáðu myndina: Mætti allt of feitur til baka úr sumarfríi

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 15. júlí 2021 08:35

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er óhætt að segja að stuðningsmenn Arsenal hafi ekki glaðst er þeir sáu Willian leika æfingaleik með liðinu gegn Hibernian fyrr í vikunni. Þeir tóku eftir að Brasilíumaðurinn er í allt annað en ásættanlegu líkamlegu standi eftir sumarfríið sitt.

Willian kom til Arsenal frá Chelsea síðasta sumar. Hann átti vægast sagt ömurlegt tímabil og hafa margir stuðningsmenn afar takmarkaðan áhuga á að hafa hann áfram hjá félaginu.

Sú staðreynd að Willian hafi einfaldlega mætt með bumbu í æfingaleikinn gegn Hibernian dregur aðeins úr þeim áhuga.

Leikmenn í ensku úrvalsdeildinni sem ekki tóku þátt á stórmótum með sínum liðum í sumar hafa verið í fríi síðan í lok maí. Það er misjafnt hversu vel menn hugsa um sig þegar þeir fá smá frí.

Myndina af Willian í leiknum gegn Hibernian má sjá hér fyrir neðan. Þess má geta að Arsenal tapaði honum 2-1.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Banaslys í Mosfellsbæ

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Xabi Alonso opnar dyrnar fyrir því að taka við liði á Englandi

Xabi Alonso opnar dyrnar fyrir því að taka við liði á Englandi
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Ætla að reyna að gera allt til að Semenyo fari ekki í janúar – Gæti fengið að fara fyrir miklu lægri upphæð næsta sumar

Ætla að reyna að gera allt til að Semenyo fari ekki í janúar – Gæti fengið að fara fyrir miklu lægri upphæð næsta sumar
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Sturlaðar upphæðir sem Salah hefur þénað eftir að hafa gert nýjan samning – 340 milljónir fyrir hvert markið

Sturlaðar upphæðir sem Salah hefur þénað eftir að hafa gert nýjan samning – 340 milljónir fyrir hvert markið
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Mættur aftur til vinnu eftir handtöku á laugardag – Skallaði einstakling sem hann óttaðist að ætlaði að ræna sig

Mættur aftur til vinnu eftir handtöku á laugardag – Skallaði einstakling sem hann óttaðist að ætlaði að ræna sig
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Sagði upp störfum í Kóreu eftir magnaðan árangur

Sagði upp störfum í Kóreu eftir magnaðan árangur
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Sjáðu myndbandið: Með 85 milljónir í vikulaun en skallaði einstakling sem vildi taka sjálfu á knæpu

Sjáðu myndbandið: Með 85 milljónir í vikulaun en skallaði einstakling sem vildi taka sjálfu á knæpu