Thierry Henry hefur undirstrikað við Sky Sports að Daniel Ek, eigandi streymisveitunnar Spotify, sé staðráðinn í því að kaupa Arsenal en að Kroenke fjölskyldan eigi eftir að svara tilboðinu.
Ek, sem var í stúkunni í 3-1 sigri Arsenal á Tottenham á sunnudag, lagði fram 1.8 billjóna punda tilboð í félagið í maí síðastliðnum. Ek er sannfærður um að Kroenke taki boðinu – sem hann telur kostulegt – og hefur fullan stuðning frá Henry og fleiri goðsögnum Arsenal þar á meðal Patrick Vieira og Dennis Bergkamp.
Henry, sem vann fjóra titla með Arsenal á sínum tíma, sagði að það væru engar viðræður á milli aðilana að svo stöddu en er fastur á því að hægt sé að komast að samkomulagi þrátt fyrir að Kroenke hafi áður sagt að félagið er ekki til sölu.
„Það þarf einhver að svara hinu megin svo að hægt sé að komast að samkomulagi,“ sagði Henry í samtali við Monday Night Football.
„Það hefur ekki gerst ennþá en hann, og við erum komnir til að vera. Svo við skulum sjá hvað gerist. En eins og stendur skulum við njóta sigursins í gær. Það eru engar viðræður í gangi eins og staðan er núna og ég trúi því að þetta verði langt ferli. Ég sagði það síðast þegar ég var gestur í þættinum í maí. En ég veit í raun ekki hvað þetta tekur langan tíma. En við erum komnir til að vera.“