Manchester City vann 0-2 útisigur á Crystal Palace í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.
Fyrri hálfleikur var rólegur. City ógnaði lítið og heimamenn líklegri til að skora ef eitthvað var. Staðan í hálfleik var markalaus.
Það var þó mun öflugra lið Man City sem mætti í seinni hálfleik. Þeir kláruð leikinn með tveimur mörkum á stuttum kafla þegar tæpur stundarfjórðungur var liðinn af hálfleiknum.
Sergio Aguero skoraði fyrra mark City eftir fyrirgjöf frá Benjamin Mendy.
Seinna markið skoraði Ferran Torres með skoti utarlega í teig Palace. Varnarleikur heimamanna var ekki sérstakur í markinu. Lokatölur, eins og fyrr segir, 0-2.
Man City er nú með 13 stiga forskot á toppi deildarinnar. Ef Manchester United, sem er í öðru sæti, tapar gegn Liverpool á morgun er City orðið Englandsmeistari.
Palace siglir lignan sjó í 13. sæti deildarinnar.