

Það var hiti í mannskapnum Á Camp Nou í Barcelona í gær þár sem heimamenn tóku á móti franska liðinu Paris-Saint Germain.
Lionel Messi kom Barcelona yfir með marki úr vítaspyrnu á 27. mínútu. Aðeins fimm mínútum síðar jafnaði Kylian Mbappé, metin fyrir Paris Saint Germain með marki eftir stoðsendingu frá Marco Veratti. Mbappé var síðan aftur á ferðinni er hann kom gestunum yfir með marki á 65. mínútu og á 70. mínútu bætti Moise Kean við þriðja marki Paris Saint Germain með marki eftir stoðsendingu frá Leandro Paredes.
Mbappé innsiglaði síðan þrennu sína og 4-1 sigur Paris Saint Germain með marki á 85. mínútu. Seinni leikur liðanna fer fram í París þann 10. mars næstkomandi.
Í fyrri hálfleik þegar staðan var 1-1 virtist Gerard Pique sjá í hvað stefndi og lét í sér heyra. „Höldum í boltann í smá stund, andskotinn hafi það,“ öskraði Pique á samherja sína.
Antoine Griezmann var orðinn þreyttur á röflinu í Pique og svaraði. „Hafðu hljótt, hættu að öskra fáviti.“
Pique var ekki sáttur við svarið. „Nei þú ert fáviti, við erum í vandræðum og höldum áfram að hlaupa eins og vitleysingar.“
Rifrildi þeirra má sjá hér að neðan.
Uf, terrible arguing between Piqué and Griezmann on the pitch:
Piqué: “Let’s have a long ball possession, for fu**’s sake!”
Griezmann: “Be quiet, stop shouting motherfu****”
Piqué: “No you motherfu****, we struggle and still we are running as crazy!” pic.twitter.com/JOPOgfYIjl
— Tancredi Palmeri (@tancredipalmeri) February 17, 2021