fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
433Sport

Mínútu þögn í Glasgow á morgun til minningar um Jóhannes Eðvaldsson

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 26. janúar 2021 15:22

Jóhannes í leik með Celtic / GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mínútu þögn verður til minningar um Jóhannes Eðvaldsson í Glasgow á morgun þegar Celtic tekur á móti Hamilton, í úrvalsdeildinni þar í landi.

Jóhannes Eðvaldsson, fyrrverandi landsliðsmaður í fótbolta, lést í fyrrdag, sjötugur að aldri. Greint hefur verið frá því að banamein Jóhannesar hafi verið COVID-19 veiran. Jóhannes gerði garðinn frægan með stórliði Celtic í Skotlandi á áttunda áratugnum og naut mikillar hylli meðal stuðningsmanna liðsins

Jóhannes fæddist í Vestmannaeyjum árið 1950, hann lék lengst af með Val. Hann reyndi einnig 22 ára gamall fyrir sér í atvinnumennsku í Suður-Afríku með Cape Town City í Höfðaborg. Eftir stutta dvöl hjá Metz í Frakklandi og svo Holbæk í Danmörku gekk Jóhannes til liðs við Celtic í Skotlandi árið 1975.

Jóhannes spilaði í fimm farsæl ár með skoska stórliðinu. Hann skoraði 36 mörk á ferli sínum hjá Celtic í 188 leikjum og þótti afar fjölhæfur leikmaður sem gat leyst flestar stöður á knattspyrnuvellinum. Hjá Celtic vann Jóhannes tvo Skotlandsmeistaratitla og einn bikarmeistaratitil. Hann hélt svo til Bandaríkjanna árið 1980. Jóhannes lék einnig með Hannover 96 í Þýskalandi og Motherwell í Skotlandi áður en atvinnumannaferli hans lauk árið 1984.

Jóhannes lék 34 landsleiki fyrir Íslands hönd og skoraði í þeim tvö mörk. Hann var bróðir Atla Eðvaldssonar, fyrrverandi landsliðsfyrirliða, en Atli lést árið 2019. Jóhannes lætur eftir sig eiginkonu, Catherine Bradley, og fjögur börn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Conte kominn með nýtt verkefni – Mun gera þriggja ára samning

Conte kominn með nýtt verkefni – Mun gera þriggja ára samning
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Sjáðu ótrúlegar myndir: Fann óvenjulegt vopn og hótaði öllu illu – Á von á harðri refsingu

Sjáðu ótrúlegar myndir: Fann óvenjulegt vopn og hótaði öllu illu – Á von á harðri refsingu
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Besta deild kvenna: Sandra skoraði fernu – Svakaleg endurkoma Stjörnunnar

Besta deild kvenna: Sandra skoraði fernu – Svakaleg endurkoma Stjörnunnar
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Varane þakkar stuðninginn og getur ekki beðið eftir endurkomunni

Varane þakkar stuðninginn og getur ekki beðið eftir endurkomunni
433Sport
Í gær

Enn og aftur orðaður við brottför – Hafa harðneitað að hann sé til sölu

Enn og aftur orðaður við brottför – Hafa harðneitað að hann sé til sölu
433Sport
Í gær

England: Sheffield er fallið úr efstu deild – Burnley fékk stig í Manchester

England: Sheffield er fallið úr efstu deild – Burnley fékk stig í Manchester