fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Liverpool vs Manchester United: Líkleg byrjunarlið í toppslag umferðarinnar

Aron Guðmundsson
Laugardaginn 16. janúar 2021 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Liverpool tekur á móti Manchester United í toppslag ensku úrvalsdeildarinnar á morgun. Leikið verður á Anfield og hefst leikurinn klukkan 16:30. Manchester United er fyrir leikinn í 1. sæti deildarinnar með 36 stig. Liverpool situr í 2. sæti með 33 stig. Leikurinn er því mikilvægur fyrir bæði lið.

Breski fjölmiðillinn The Guardian, hefur stillt upp líklegum byrjunarliðum í leiknum.

Aðal spurningarmerkið í liði Liverpool er hvort að miðvörðurinn, Joel Matip, verði orðinn heill heilsu til þess að spila leikinn. Thiago er snúinn aftur í lið Liverpool eftir meiðsli og mun að öllum líkindum vera í byrjunarliði Liverpool á morgun.

Hjá Manchester United er óvissa um þátttöku Anthony Martial. Edinson Cavani er líklegur til þess að leiða sóknarlínu Manchester United í leiknum með Marcus Rashford.

Manchester United er á fljúgandi siglingu um þessar mundir í ensku úrvalsdeildinni. Liðið hefur unnið fimm af síðustu sex leikjum. Liverpool hefur verið í basli en munu án efa berjast fyrir sínu á heimavelli og freista þess að jafna Manchester United að stigum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Nefna leiðir sem Ísland getur farið til að særa Evrópumeistarana

Nefna leiðir sem Ísland getur farið til að særa Evrópumeistarana
433Sport
Í gær

Svona er tölfræði Íslands gegn Englandi

Svona er tölfræði Íslands gegn Englandi
433Sport
Fyrir 2 dögum
Rekinn korter í HM
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fer til Tottenham ef liðið bjargar sér frá falli

Fer til Tottenham ef liðið bjargar sér frá falli
433Sport
Fyrir 2 dögum

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola
433Sport
Fyrir 2 dögum

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu
433Sport
Fyrir 2 dögum

Victoria Beckham tjáir sig í fyrsta sinn um fjölskylduharmleikinn – „Höfum alltaf reynt að vernda þau“

Victoria Beckham tjáir sig í fyrsta sinn um fjölskylduharmleikinn – „Höfum alltaf reynt að vernda þau“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést