

Það er 1,5 milljarður í húfi þegar Ísland mætir Ungverjalandi í Búdapest í kvöld um laust sæti á EM. Úrslitaleikurinn hefst klukkan 19:45.
Íslenska landsliðið komst inn á Evrópumótið 2016 sem var fyrsta stórmót íslenska í knattspyrnu karla, liðið náði svo þeim frábæra árangri að komast inn á Heimsmeistaramótið árið 2018. Í boði er því farmiði á þriðja stórmótið í röð fyrir gullkynslóð Íslands.
Veðbankar hafa meiri trú á sigri Ungverjalands í kvöld en stuðlarnir á Lengjunni bera þess merki.

Stuðull á sigur Ungverja er 2,15 en stuðull á sigur Íslands er 2,81. Möguleikinn á jafntefli er einnig til staðar en þá yrði framlengt og vítaspyrnukeppni ef til þess kæmi.