fbpx
Fimmtudagur 18.september 2025
433Sport

Rúnar Alex mætir til Lundúna í dag og gengur frá skiptum sínum til Arsenal

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 17. september 2020 10:01

© 365 ehf / Anton Brink

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rúnar Alex Rúnarsson er væntanlegur á æfingasvæði Arsenal í dag tli að ganga frá félagaskiptum sínum frá Dijon. Þetta herma heimildir 433.is.

Dijon og Arsenal hafa náð samkomulagi um kaupverðið en samkvæmt heimildum 433.is hækka laun Rúnars all verulega við skiptin.

Rúnar Alex mun skrifa undir fimm ára samning við Arsenal, fjögurra ára til að byrja með en með möguleika á fimmta árinu.

Ef allt gengur eftir í dag ætti Rúnar Alex að skrifa undir og vera í hóp hjá Arsenal gegn West Ham um helgina. Félagið seldi Emiliano Martinez í vikunni og á Rúnar Alex að taka hans stöðu.

Ensk blöð telja að Rúnar Alex gæti þreytt frumraun sína með Arsenal strax í næstu viku þegar Arsenal mætir Leicester í enska deildarbikarnum. Algengt er að varamarkvörður og menn sem spila minna byrji leiki í deildarbikarnum.

Árið 2014 fór Rúnar til danska liðsins Nordsjælland frá KR en þá var hann aðeins 18 ára gamall. Árið 2018 fór Rúnar frá danska liðinu og yfir til Frakklands í Dijon.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Fyrrum þjálfari hjá United með ráð – Segir þetta augljósa kostinn verði Amorim rekinn

Fyrrum þjálfari hjá United með ráð – Segir þetta augljósa kostinn verði Amorim rekinn
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Dramatík í Kórnum – Öll mörk komu í seinni hálfleik í sjö marka leik

Dramatík í Kórnum – Öll mörk komu í seinni hálfleik í sjö marka leik
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Evrópumeistararnir sýndu hetju gærkvöldsins áhuga

Evrópumeistararnir sýndu hetju gærkvöldsins áhuga
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Chelsea nýtir sér nýja reglu sem UEFA setti í síðustu viku

Chelsea nýtir sér nýja reglu sem UEFA setti í síðustu viku
433Sport
Í gær

Tekjur United aldrei meiri en á síðustu leiktíð – Áfram taprekstur en miklu minni en árið áður

Tekjur United aldrei meiri en á síðustu leiktíð – Áfram taprekstur en miklu minni en árið áður
433Sport
Í gær

Þetta er upphæðin sem United þarf að borga Amorim fyrir að reka hann

Þetta er upphæðin sem United þarf að borga Amorim fyrir að reka hann