fbpx
Sunnudagur 14.desember 2025
433Sport

Higuain sakaður um að brjóta reglur um sóttkví: Móðir hans berst fyrir lífi sínu

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 23. mars 2020 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gonzalo Higuain, framherji Juventus flúði Ítalíu vegna COVID-19 veirunnar. Hún hefur leikið Ítalíu grátt síðustu vikur.

Higuain fór heim til Argentínu eftir að hafa farið í próf og fengið staðfest að hann væri ekki með veiruna.

Ítalskir fjölmiðlar hafa talað um að þarna hafi Higuain brotið reglur er varðar sóttkví. Bróðir hans segir söguna flóknari en það.

,,Móðir okkar er að berjast við krabbamein, þeir sem skrifa ljóta hluti er líklega sama um hana,“ skrifar bróðir framherjans.

Juventus gaf honum leyfi til að fara til Argentínu en þar í landi átti hann að fara í tveggja vikna sóttkví. ,,Gonzalo fékk leyfi frá Juventus, ekki nota nafn hans til að skaða fjölskyldu okkar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Stefán segir stjórnarmann bersýnilega hafa komið sér undan að ræða málefnið – „Eins og það væri bara einhver verkaskipting og kæmi honum ekkert við“

Stefán segir stjórnarmann bersýnilega hafa komið sér undan að ræða málefnið – „Eins og það væri bara einhver verkaskipting og kæmi honum ekkert við“
433Sport
Í gær

Langskotið og dauðafærið – Stórsigur í vændum á Emirates?

Langskotið og dauðafærið – Stórsigur í vændum á Emirates?
433Sport
Í gær

Forsetinn biðlar til Real Madrid

Forsetinn biðlar til Real Madrid
433Sport
Í gær

Amorim gefst upp á Baleba og horfir norður í land

Amorim gefst upp á Baleba og horfir norður í land
433Sport
Í gær

Mikill viðsnúningur í rekstri Manchester United á milli ára – Farnir að skila hagnaði eftir niðurskurð

Mikill viðsnúningur í rekstri Manchester United á milli ára – Farnir að skila hagnaði eftir niðurskurð
433Sport
Í gær

Íþróttavikan: Stefán Pálsson fer um víðan völl

Íþróttavikan: Stefán Pálsson fer um víðan völl