Liverpool er úr leik í Meistaradeild Evrópu eftir leik við Atletico Madrid í gær á Anfield.Fyrri leiknum lauk með 1-0 sigri Atletico á heimavelli og var því mikið undir í seinni leiknum.
Eitt mark var skorað í venjulegum leiktíma en það gerð Georginio Wijnaldum fyrir heimamenn á 43. mínútu. Það var því gripið til framlengingar og þar komst Liverpool yfir með marki frá Roberto Firmino á 94. mínútu. Útlitið var mjög bjart fyrir Liverpool en 2-0 forystan entist í þrjár mínútur er Marcoc Llorente skoraði gott mark fyrir gestina.
Liverpool þurfti því að skora annað mark til að komast áfram en það var einnig Atletico sem gerði það næsta. Llorente var aftur á ferðinni á 105. mínútu og jafnaði metin í 2-2 fyrir spænska stórliðið. Alvaro Morata kláraði svo dæmið algjörlega í uppbótartíma framlengingarinnar er hann komst einn gegn Adrian og skoraði. Lokatölur urðu 2-3 og eru ríkjandi meistararnir því úr leik í 16-liða úrslitum.
Íslendingar ræða þessi úrslit mikið á samfélagsmiðlum og stuðningsmenn Liverpool á Íslandi ræða málið á Facebook. Einn af þeim sem tekur til máls er fyrrum handboltakappinn, Sigfus Sigurðsson. Hann les yfir mönnum og kemur Adrian til varnar.
,,Held menn séu að gleyma 11 fyrstu leikjum tímabilsins þar sem hann hélt hreinu og var frábær og menn hérna kölluðu hann næst besta markmann deildarinnar. Hættið að vera svona miklir hræsnarar,“ skrifar Fúsi.
Sveinn Rafn Hinriksson
Það þarf að hætta að rannsaka covid19 og fara að rannsaka hvað í andskotanum gerðist eftir þetta helvítis landsleikjahlé!?!?!?!?!?!?!
Árni Árnason
Slakur dómari sem leyfði of mikið og vörnin eða stjórnin á vörninni var glötuð
Hallgrímur Heimir Geirdal Jónasson
Versta við þetta er að tímabilið er svotil búið keppnislega séð. Bara formsatriði að vinna deildina ( sem er frábært ) og erum dottnir út úr öllu öðru. Er ennþá fúll yfir FA bikarnum sem ég hefði vilja vinna þetta árið.
Valberg Snær Ólafsson
Karius varð okkur að falli aftur
Sigfús Sigurðsson
Úfff…
Held menn séu að gleyma 11 fyrstu leikjum tímabilsins þar sem hann hélt hreinu og var frábær og menn hérna kölluðu hann næst besta markmann deildarinnar. Hættið að vera svona miklir hræsnarar.
YNWA
Ragnar Hilmarsson
Langbesti leikurinn okkar i langan tíma. Oblak með 10 í einkunn en Adrian 1. Þetta frí hlýtur samt að vera umhugsunarefni fyrir Klopp. Höfum átt hræðilega leiki eftir það. Við vorum nanast orðnir meistarar og attum séns á tveimur bikurum i viðbót en hentum þeim frá okkur. Og nú geta menn þá nanast farið i sumarfrí.