Íslenska karlalandsliðið spilaði við Frakkland í gær en um var að ræða leik í undankeppni EM.
Frakkar eru með eitt sterkasta lið heims um þessar mundir en þeir unnu heimsmeistaramótið í Rússlandi í fyrra.
Verkefnið var alltaf að fara að verða erfitt fyrir Ísland en strákarnir stóðu fyrir sínu á Laugardalsvelli.
Aðeins eitt mark var skorað í viðureigninni en það gerði Olivier Giroud fyrir gestina úr vítaspyrnu.
Antoine Griezmann féll með tilþrifum innan teigs eftir snertingu frá Ara Frey Skúlasyni og má segja að dómurinn hafi verið umdeildur.
Við vorum á vellinum og hér má sjá myndasyrpu úr tapinu.