Birkir Bjarnason var frábær í gær er íslenska landsliðið spilaði við Frakkland í undankeppni EM.
Birkir er enn án félags sem er í raun ótrúlegt en hann yfirgaf lið Aston Villa í sumar.
Birkir fékk takmarkað að spila hjá Villa á síðustu leiktíð og var samningi hans að lokum rift.
Nú hlýtur eitthvað að gerast hjá Birki sem var einn besti maður vallarins er Ísland tapaði 1-0 í gær.
Íslenska þjóðin hrósaði Birki mikið fyrir frammistöðuna og á hann það virkilega skilið.
Birkir Bjarna mom lýgilegur lrikur hjá honum.
— Gunni Nella (@gunni_nella) 11 October 2019
Mjög góður leikur Íslands, hefðum unnið öll önnur lið í heiminum með svona frammistöðu. Kóngurinn af brekkunni BIrkir Bjarnason var maður leiksins #fotboltinet
— Hlynur Örn Ásgeirs (@Hlynurasgeirs) 11 October 2019
Hvernig getur það verið að Birkir Bjarna sé án félags. Eftir þessa frammistöðu hljóta félög að bjóða honum almennilegan samning. #fotboltinet #ISLFRA
— Ellert I. Hafsteinsson (@Ellertingi) 11 October 2019
Birkir Bjarna MoM frábær á miðjunni ánægður með liðið en úrslitin voru svekkjandi áfram gakk núna klárum við þetta! #fotboltinet
— Thorir Aronsson (@ThorirAronsson) 11 October 2019
Birkir Bjarna velur úr tilboðum eftir þennan leik?
— Thorarinn Ingi V (@thorarinnV) 11 October 2019
Birkir Bjarnason að troða sokk upp í marga í kvöld. Hlýtur að fá alvöru lið eftir þessa frammistöðu. Besti leikmaður íslenska liðsins.
— Bjarni Helgason (@BjarniHelgason) 11 October 2019
Ef að Birkir fær ekki vinnu eftir þennan leik þá er hann með lélegasta umboðsmann í heimi #ISLFRA
— Kristjan Ari (@kristjanari7) 11 October 2019
Birkir Bjarna er kannski án felags en þvílíki leikurinn sem hann hefur átt!
— Ingimar H. Finnsson (@ingimarh) 11 October 2019
Birkir unplayable at times
— Vilhjálmur Freyr (@Vilhjalmurfreyr) 11 October 2019
Birkir Bjarna?
— Jón Björgvin (@Jonbjorgvin) 11 October 2019
Okei, Birkir Bjarnason HLÝTUR að fá einhver sexý samningstilboð eftir þennan leik.
— Daníel Magnússon (@danielmagg77) 11 October 2019
Birkir Bjarnason er fínasti kantmaður en hann er gjörsamlega frábær miðjumaður. Bossað þetta miðsvæði hingað til
— Hörður S Jónsson (@hoddi23) 11 October 2019
Hvernig er Birkir Bjarna ennþá án liðs? What a player!! #fotboltinet #islfra
— IceTips (@ice_tips1) 11 October 2019