fbpx
Miðvikudagur 08.maí 2024
433Sport

Gaf honum glóðarauga en sögur um framhjáhald eru bull

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 3. október 2019 15:02

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Christian Eriksen, leikmaður Tottenham, þurfti að svara fyrir sig á samskiptamiðlinum Twitter í gær. Eriksen lék með Tottenham í 7-2 tapi gegn Bayern Munchen í fyrradag en leikið var í Meistaradeildinni.

Í kjölfarið fóru sögusagnir af stað um Eriksen og liðsfélaga hans Jan Vertonghen. Talað var um að Vertonghen hefði sofið hjá eiginkonu Eriksen og að þeir hafi rifist heiftarlega í búningsklefanum.

Einnig var greint frá því að Eriksen hafi reynt ítrekað að komast burt í sumar vegna þess. ,,Kjaftæði,“ skrifaði Eriksen á Twitter-síðu sína í gær áður en Vertonghen blandaði sér í málið og sagði sömu sögu.

Eriksen þarf þó að taka á sig eitt, það er að hafa gefið Vertonghen glóðarauga á æfingu Tottenham.

Ensk blöð segja frá því að þeir hafi skollið saman á æfingu og Vertonghen farið illa úr því, allar sögur um framhjáhald eru hins vegar tóm steypa.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Hera úr leik
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Forsetinn staðfestir að Greenwood sé til sölu

Forsetinn staðfestir að Greenwood sé til sölu
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Ten Hag verður ekki rekinn fyrir bikarúrslitaleikin

Ten Hag verður ekki rekinn fyrir bikarúrslitaleikin
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Segist hafa gert nákvæmlega sömu mistök og Arnar – „Þess vegna segi ég þetta“

Segist hafa gert nákvæmlega sömu mistök og Arnar – „Þess vegna segi ég þetta“
433Sport
Í gær

Sancho hefur engan áhuga á því að snúa aftur til United

Sancho hefur engan áhuga á því að snúa aftur til United