

Frank Lampard hefur verið ráðinn nýr stjóri Chelsea á Englandi en þetta staðfesti félagið í dag. Hann gerir þriggja ára samning.
Lampard hefur verið orðaður við Chelsea undanfarnar vikur en hann stýrði síðast Derby County.
Þar náði Lampard góðum árangri en Derby var hársbreidd frá því að komast upp í ensku úrvalsdeildina.
Maurizio Sarri var stjóri Chelsea á síðustu leiktíð en hann tók við Juventus fyrr í sumar.
Ráðning Lampard gleður marga hjá Chelsea en hann er fyrrum leikmaður liðsins og goðsögn í sögu félagsins.
Chelsea staðfesti ráðningu Lampard í dag en þetta er aðeins hans annað stjórastarf eftir eitt ár hjá Derby.