

Kári Árnason er mættur heim til Íslands og æfir nú með íslenska landsliðinu fyrir leiki gegn Albaníu og Tyrkland í undankeppni EM.
Kári var að klára hörkugott tímabil í Tyrklandi en er nú á leið heim og mun semja við Víking Reykjavík.
,,Það er planið að koma heim. Ég er að tala við Víkingana, það er ekkert leyndarmál en við ákváðum að geyma það fram yfir þessa landsleiki og svo myndum við fara yfir stöðu mála,“ sagði Kári.
,,Við náðum að komast upp í úrvalsdeild og vorum með mjög gott lið. Þetta var skemmtileg lífsreynsla en mjög sérstakt að mörgu leyti.“
,,Hugarfarið og hvernig þeir spila fótbolta og annað, þetta er allt öðruvísi en ég hef kynnst í Evrópu.“
,,Við unnum flesta leiki og það var mjög gaman að þessu.“
Leikirnir í undankeppninni eru gríðarlega mikilvægir ef Ísland ætlar að komast á lokamót EM á næsta ári.
Kári ræddi leikina tvo sem og fyrri leiki þar sem við unnum Andorra og töpuðum gegn stórliði Frakklands.
,,Þetta eru liðin sem við erum að berjast við um annað sætið í þessum riðli. Ef við náum góðum úrslitum eða vinnum báða leikina þá erum við ekki með pálmann í höndunum en þá lítur þetta mjög vel út.“
,,Þetta var erfiður leikur gegn Frakklandi og svo var jákvætt að ná sigri á erfiðum útivelli gegn Andorra. Það var ýmislegt jákvætt í leiknum gegn Frökkum en við vorum að prófa nýtt leikkerfi gegn heimsmeisturunum.“
,,Það var enginn að búast við sigri en það var engin ástæða til að tapa þessu 4-0. Síðasta korterið var engan veginn nógu gott. Við vorum út úr stöðum og þetta leit ekki nógu vel út. Skipulagið hvarf og við fórum að gera okkar eigin hluti.“
,,Það var engu að síður margt jákvætt í fyrri hálfleik þar sem þeir sköpuðu sér fá færi og lengi vel fram eftir en svo voru þeir með lausnir og frábæra leikmenn.“
Nánar er rætt við Kára hér fyrir neðan.