fbpx
Sunnudagur 14.desember 2025
433

Magnað mark Matic tryggði United stigin þrjú í endurkomu

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 5. mars 2018 21:53

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United náði í stign þrjú þegar liðið heimsótti Crystal Palace heim í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

United byrjaði leikinn illa og var fyrri hálfleikurinn afar illa spilaður af liðinu. Andros Townsend kom heimamönnum yfir á elleftu mínútu en skot hans fór í Victor Lindelof og í netið.

Síðari hálfleikur var svo ekki gamall þegar Patrick Van Aanholt kom Palace í 2-0. Liðið tók aukaspyrnu fljótt á miðum vellinum og hollenski bakvörðurinn var sendur einn í gegn á meðan Chris Smalling var sofandi. Van Aanholt skoraði svo á nærstöngina á David De Gea.

Á 55 mínútu lagaði Smalling stöðuna fyrir United þegar hann lúrði á teignum og kom boltanum í netið af stuttu færi.

Það var svo á 76 mínútu sem Romelu Lukaku jafnaði leikinn en hann fékk boltann á teignum eftir gott skot Alexis Sanchez.

Það var svo í uppbótartíma sem Nemanja Matic tryggði United sigurinn með geggjuðu skoti fyrir utan teig og tryggði United stigin þrjú.

United fer aftur upp í annað sæti deidarinnar með 62 stig, endurkomusigur af bestu gerð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Stefán segir stjórnarmann bersýnilega hafa komið sér undan að ræða málefnið – „Eins og það væri bara einhver verkaskipting og kæmi honum ekkert við“

Stefán segir stjórnarmann bersýnilega hafa komið sér undan að ræða málefnið – „Eins og það væri bara einhver verkaskipting og kæmi honum ekkert við“
433Sport
Í gær

Langskotið og dauðafærið – Stórsigur í vændum á Emirates?

Langskotið og dauðafærið – Stórsigur í vændum á Emirates?
433Sport
Í gær

Forsetinn biðlar til Real Madrid

Forsetinn biðlar til Real Madrid
433Sport
Í gær

Amorim gefst upp á Baleba og horfir norður í land

Amorim gefst upp á Baleba og horfir norður í land
433Sport
Í gær

Mikill viðsnúningur í rekstri Manchester United á milli ára – Farnir að skila hagnaði eftir niðurskurð

Mikill viðsnúningur í rekstri Manchester United á milli ára – Farnir að skila hagnaði eftir niðurskurð
433Sport
Í gær

Íþróttavikan: Stefán Pálsson fer um víðan völl

Íþróttavikan: Stefán Pálsson fer um víðan völl