fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433

Kórdrengir ætla sér stóra hluti – Einar Orri og Magnús Þórir skrifa undir

Victor Pálsson
Fimmtudaginn 22. nóvember 2018 17:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kórdrengir ætla sér stóra hluti í 3.deild karla næsta sumar og hefur samið við nokkra öfluga leikmenn.

Kórdrengir hafa náð að sannfæra marga öfluga leikmenn síðustu ár og má nefna þá Farid Zato, Ingvar Kale og Viktor Unnar Illugason.

Einar Orri Einarsson er á meðal þeirra sem hafa gert samning við Kórdrengi en hann kemur til félagsins frá Keflavík.

Einar Orri hefur allan sinn feril leikið með Keflavík og var partur af liðinu í sumar sem féll úr Pepsi-deildinni.

Einnig fékk félagið til sín Magnús Þórir Matthíasson. Magnús á að baki fjölmarga leiki í Pepsi-deildinni en lék síðast með Reyni Sandgerði.

Tilkynning Kórdrengja:

Nýir leikmenn sem hafa gengið til liðs við okkur eru eftirfarandi:


Ein­ar Orri hef­ur leikið all­an fer­il sinn með Kefla­vík. Hann lék sinn fyrsta meist­ara­flokks­leik með Suður­nesjaliðinu árið 2005 og hef­ur spilað alls 180 leiki með því og skorað 10 mörk. Einari Orra stóðu mörg tilboð til boða en ákvað að ganga til liðs við Kórdrengi í krefjandi en spennandi verkefni að koma sér uppúr 3. deildinni.


Magnús Þórir Matthíasson hefur spilað flesta sína leiki, 187 talsins, fyrir Keflavík með stuttu stoppi í Víði og Fylki og nú siðast Reynir Sandgerði. Magnús var algjör hvalreki fyrir Reyni í fyrra og kom að helming marka þeirra síðasta sumar, skoraði 22 mörk og lagði upp 11. Frábær styrkur sem mun nýtast Kórdrengjum virkilega vel.


Alexander Magnússon hefur ákveðið að spila áfram með Kórdrengjum eftir stórkostlegt ár í fyrra. Alexander hefur spilað með Grindavík, Njarðvík og Keflavík, 120 Meistaraflokks leiki samtals. Virkilega góður styrkur fyrir okkur að halda þessum frábæra leikmanni.


Eyþór Helgi Birgisson er kominn aftur heim. Frábær drengur í alla staði og gífurleg styrking fyrir liðið. Fjölhæfur leikmaður sem getur spilað flestar stöður á vellinum. Eyþór Helgi hefur spilað fyrir ÍBV, HK og Víking Ólafsvík, 150 Meistaraflokks leiki samtals.


Kórdrengir eru gífurlega ánægðir með komu þessara drengja, sem eru mikil styrking inn í liðið. Okkur hlakkar til að takast á við komandi verkefni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Í gær

Chelsea fær ansi góðar fréttir

Chelsea fær ansi góðar fréttir
433Sport
Í gær

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola
433Sport
Í gær

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu
433Sport
Í gær

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði
433Sport
Í gær

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra