

Jamie Carragher, fyrrum leikmaður sagði á dögunum að Virgil van Dijk, nýjasti leikmaður Liverpool mætti alveg við því að missa nokkur kíló og þá setti hann spurningamerki við leikform varnarmannsins.
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool var spurður út í þessi ummæli Carragher á blaðamannafundi í dag.
„Ég er viss um að Jamie megi alveg við því að missa nokkur kíló, þetta er ekki vandamál,“ sagði Klopp léttur.
Carragher var ekki lengi að svara Klopp og setti inn skemmtilega færslu á Twitter þar sem hann sagðist hafa mætt í Bootcamp í morgun.
Færsluna sem hann setti inn má sjá hér fyrir neðan.
I was in Barry’s Bootcamp this morning! https://t.co/pDuBVyrEul
— Jamie Carragher (@Carra23) February 2, 2018