fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Steinunn Ólína: „Dauðinn er nauðaómerkilegur – lífið er hinsvegar ekkert minna en stórkostlegt!“

Sjúkdómur Stefáns langt genginn – „Við vitum að tíminn er dýrmætur“

Einar Þór Sigurðsson
Miðvikudaginn 21. júní 2017 20:41

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við vitum að tíminn er dýrmætur sem aldrei fyrr og höfum einsett okkur að njóta hans eins vel og okkur gefst kostur á. Dauðinn er nauðaómerkilegur – lífið er hinsvegar ekkert minna en stórkostlegt!“

Þetta segir Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, eiginkona Stefáns Karls Stefánssonar, í færslu á Facebook í kvöld. Steinunn segir í upphafi færslunnar að margir spyrji frétta af heilsu Stefáns, sem greindist með gallgangnakrabbamein í fyrrahaust, og því hafi hann beðið hana um að segja frá stöðu mála án þess að draga nokkuð undan.

„Við vonum það besta“

„Nú er 14 daga spítalavist Stefáns lokið. Þann 7. júní voru fjarlægð þrjú meinvörp úr lifur og í kjölfarið fékk hann sýkingu sem lengdi spítalavistina um viku. Stefán er með gallgangakrabbamein (Cholangiocarcinoma), sjaldgæfan og lítt rannsakaðan sjúkdóm. Það var harmafregn að í Stefáni skyldu finnast meinvörp svo fljótt en hann fór í viðamikla aðgerð (Whipple) í byrjun október 2016 þar sem frumæxlið sem óx úr gallgangi yfir í brisið var fjarlægt.
Sjúkdómurinn er nú langt genginn, á 4. stigi og því eru lífslíkur hans því miður verulega skertar,“ segir Steinunn í færslunni.

„Ég vil þakka allar hlýjar kveðjur til okkar – þær eru okkur ómetanlegar,“ segir Steinunn Ólína.
Mikill stuðningur „Ég vil þakka allar hlýjar kveðjur til okkar – þær eru okkur ómetanlegar,“ segir Steinunn Ólína.

Hún segir að lækning sé ekki í sjónmáli þegar sjúkdómurinn er svo langt genginn. „Tilraunir eru gerðar með lyf og lífslengjandi hefðbundnar og óhefðbundnar meðferðir víða um heim en svörin eru ekki að berast sem skyldi enn sem komið er. Hefðbundnar krabbameinslyfjameðferðir skila heldur ekki árangri sem heitið getur þegar hér er komið sögu.“

Hún segir einnig:
„Meinvörp þessa sjúkdóms er stundum hægt að fjarlægja með skurðaðgerðum eins og í aðgerðinni sem Stefán fór í gegnum fyrir hálfum mánuði en óvíst er að hann þyldi fleiri slíkar þegar sjúkdómurinn lætur aftur á sér kræla eða að það verði hreinlega gerlegt vegna staðsetningar meinvarpa. Um þetta er lítið hægt að spá á þessari stundu. Við vonum það besta.“

„Þrátt fyrir að líkurnar og tölfræðin séu okkur ekki í hag og kerti Stefáns brenni hratt þá ætlum við ekki að dvelja við það og verða örkumla af hræðslu.“

Eignast traust með því að segja sannleikann

Steinunn segir að það hafi verið óbærilegt að segja börnum þeirra frá því að pabbi þeirra yrði ekki gamall maður og að tíminn sem þau saman væri af skornum skammti. „Að taka þá von frá þeim að pabba muni nokkurn tíma batna. Traust barna sinna eignast maður ekki nema að maður segi þeim satt, líka þegar það virðist ógerlegt. Það hefur verið þeim léttir að vita að ekki er verið að leyna þau neinu. Ef einhver heldur að börn séu ekki þess megnug að eiga innihaldsríkar samræður um dauðann, lífið og tilveruna þá fer sá hinn sami á mis við margt,“ segir Steinunn í færslunni sem má lesa í heild sinni hér neðst.

Hún segir að fjölskylda og vinir séu slegnir yfir stöðu mála og hver og einn taki á sinn hátt þessum þungbæru staðreyndum sem blasa við. Steinunn þakkar læknum Stefáns, hjúkrunarfræðingum og starfsfólki 13-G fyrir alúðina á undanförnum dögum og fleira fólki sem hefur reynst þeim vel.

„Þrátt fyrir að líkurnar og tölfræðin séu okkur ekki í hag og kerti Stefáns brenni hratt þá ætlum við ekki að dvelja við það og verða örkumla af hræðslu. Við vitum að tíminn er dýrmætur sem aldrei fyrr og höfum einsett okkur að njóta hans eins vel og okkur gefst kostur á. Dauðinn er nauðaómerkilegur – lífið er hinsvegar ekkert minna en stórkostlegt!
Ég vil þakka allar hlýjar kveðjur til okkar – þær eru okkur ómetanlegar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
Fókus
Í gær

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta