Klukkan 11:20 í dag fer fram formleg opnun Hafnartorgs í rýminu við hlið H&M þegar staðgengill borgarstjóra mun opna svæðið formlega.
Dagurinn í dag markar ákveðin tímamót í verslunarsögu miðborgar Reykjavíkur með opnun H&M og H&M Home á Hafnartorgi, segir í tilkynningu frá Reginn fasteignafélagi, en samhliða opnun þeirra verslana opnar fyrsti áfangi Hafnartorgs. Með þessum merkilega áfanga snýr verslun í miðborginni úr vörn í sókn og lifandi tenging skapast frá gamla miðbænum yfir á svæðin kringum Hörpu og höfnina. Reginn er eigandi alls verslunarhúsnæðis á Hafnartorgi og leggur áherslu á að skapa þar einstakt verslunar- og þjónustusvæði til framtíðar með iðandi mannlífi og lifandi göngugötum.
Á næstunni munu svo fleiri spennandi alþjóðlegar verslanir opna á Hafnartorgi auk þess sem um 1.100 bílastæði munu bætast við í kjallaranum undir svæðinu með tengingu við bílakjallara Hörpu.
„Með opnun fjölda nýrra verslana og tilkomu þekktra alþjóðlegra vörumerkja eykst aðdráttarafl miðborgarinnar sem jafnframt skapar fleiri tækifæri til að bjóða upp á fjölbreytta þjónustu á svæðinu. Við öll sem stöndum að verkefninu höfum gríðarlega trú á því og vitum að miðborg Reykjavíkur mun eflast með tilkomu nýrra og glæsilegra verslunarrýma. Fyrsti áfangi Hafnartorgs opnar í dag en ætlunin er að Hafnartorg verði að fullu komið í rekstur um miðjan apríl og fyrsti hluti bílakjallarans verður opnaður í desember á þessu ári “ segir Helgi S. Gunnarsson forstjóri Regins.