Heimir Hallgrímsson hefur verið ráðinn þjálfari Al-Arabi í Katar en þessar fregnir voru staðfestar í gær.
Al-Arabi er í sjötta sæti af tólf liðum í úrvalsdeildinni í Katar en hlé verður gert á deildinni um jólin. Heimir stýrir því liðinu í tveimur leikjum áður en hlé verður gert.
Heimir fær leyfi til þess að breyta liðinu í janúar en hvert lið má hafa fjóra erlenda leikmenn.
Fjölmiðlar í Katar hafa mikinn áhuga á Heimi enda hafði árangur hans með Ísland vakið heimsathygli.
Strax er byrjað að orða stór nöfn við Al-Arabi en þar má nefna Dimitri Payet hjá Marseille og Aron Einar Gunnarsson, fyrirliða Íslands.
Aron er samningsbundinn Cardiff út þetta tímabil og því ólíklegt að Aron fari til Katar fyrr en næsta sumar.
,,Við munum gera það sem þarf, við munum skoða hópinn og setjast niður með stjórninni,“ sagði Heimir við fréttamenn í dag.
,,Eftir fjóra eða fimm mánuði höfum við hugmynd um hvað við viljum á næstu leiktíð, ef við þurfum breytingar í janúar er ég viss um að forsetinn mun styðja þær.“