fbpx
Laugardagur 09.maí 2026
433Sport

Arsenal með frábæra endurkomu og lagði Tottenham í mögnuðum leik

Victor Pálsson
Sunnudaginn 2. desember 2018 16:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arsenal 4-2 Tottenham
1-0 Pierre-Emerick Aubameyang(víti, 10′)
1-1 Eric Dier(30′)
1-2 Harry Kane(34′)
2-2 Pierre-Emerick Aubameyang(56′)
3-2 Alexandre Lacazette(74′)
4-2 Lucas Torreira(77′)

Það var boðið upp á frábæran fótboltaleik á Emirates vellinum í London í dag er Arsenal og Tottenham áttust við í ensku úrvalsdeildinni.

Það er mikill rígur á milli þessara liða enda um grannaslag að ræða og var ekkert gefið eftir á grasinu.

Arsenal komst yfir snemma leiks er Pierre-Emerick Aubameyang skoraði úr vítaspyrnu sem dæmd var á Jan Vertonghen fyrir hendi innan teigs.

Forystan entist ekki of lengi en Eric Dier jafnaði metin fyrir gestina 20 mínútum síðar með skalla eftir aukaspyrnu.

Stuttu eftir það komst Tottenham svo í 2-1 er Harry Kane steig á vítapunktinn hinum megin. Brotið var á Heung-Min Son innan teigs og nýtti Kane tækifærið og skoraði örugglega.

Staðan var 2-1 fyrir Tottenham í hálfleik en nokkuð snemma í þeim síðari jafnaði Aubameyang metin fyrir Arsenal og skoraði sitt annað mark með fallegu skoti sem Hugo Lloris réð ekki við.

Varamaðurinn Alexandre Lacazette skoraði svo þriðja mark liðsins á 74. mínútu og staðan orðin 3-2.

Miðjumaðurinn Lucas Torreira gerði svo út um leikinn þremur mínútum síðar og kom þeim rauðu í 4-2.

Vertonghen fékk sitt annað gula spjald á 85. mínútu leiksins og spilaði Tottenham með tíu menn síðustu tíu mínúturnar.

Arsenal fer upp fyrir Tottenham og í fjórða sæti deildarinnar en er aðeins með betri markatölu eftir sigurinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Vonar að Tottenham kaupi miðjumann Bayern endanlega í sumar

Vonar að Tottenham kaupi miðjumann Bayern endanlega í sumar
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Íþróttavikan: Fótbolti og pólitík með Arnari Grétars

Íþróttavikan: Fótbolti og pólitík með Arnari Grétars
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Settur til hliðar eftir að þessi skilaboð urðu opinber – „Ég hef aldrei verið með 15 ára stelpu“

Settur til hliðar eftir að þessi skilaboð urðu opinber – „Ég hef aldrei verið með 15 ára stelpu“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Neitar að ræða framtíð Gordon – Bayern hefur hafið viðræður

Neitar að ræða framtíð Gordon – Bayern hefur hafið viðræður
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Klæðaburður Georginu vakti gríðarlega athygli í New York – Sjáðu myndirnar

Klæðaburður Georginu vakti gríðarlega athygli í New York – Sjáðu myndirnar
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Arsenal og Liverpool á eftir dönsku ungstirni

Arsenal og Liverpool á eftir dönsku ungstirni
433Sport
Í gær

Þess vegna eru stærstu stjörnur heims að missa gríðarlegan fjölda fylgjenda á samfélagsmiðlum

Þess vegna eru stærstu stjörnur heims að missa gríðarlegan fjölda fylgjenda á samfélagsmiðlum
433Sport
Í gær

Gleðitíðindi fyrir stuðningsmenn Liverpool

Gleðitíðindi fyrir stuðningsmenn Liverpool