Það var mikil skemmtun í Meistaradeild Evrópu í kvöld en sex leikir fóru fram í riðlakeppninni.
Liverpool er ekki í frábærri stöðu í erfiðum riðli eftir 2-1 tap gegn frönsku meisturunum í Paris Saint-Germain.
PSG er nú í öðru sæti riðilsins með átta stig, tveimur stigum á undan þeim ensku. PSG á eftir að spila við Red Star frá Serbíu á meðan Liverpool mætir Napoli sem er á toppnum, þremur stigum á undan þeim rauðu.
Tottenham vann mikilvægan sigur á sama tíma gegn Inter Milan en liðið hafði betur 1-0 með marki frá Christian Eriksen.
Tottenham og Inter eru bæði með sjö stig í öðru og þriðja sæti riðilsins en það fyrrnefnda mætir Barcelona á Nou Camp í lokaleiknum á meðan Inter spilar við PSV heima.
Barcelona var komið áfram í 16-liða úrslitin fyrir leik gegn PSV í kvöld en liðið hafði betur, 2-1 í Hollandi.
Hér má sjá öll úrslit kvöldsins sem og markaskorara.
PSG 2-1 Liverpool
1-0 Juan Bernat(13′)
2-0 Neymar(37′)
2-1 James Milner(víti, 45′)
Tottenham 1-0 Inter
1-0 Christian Eriksen(80′)
Napoli 3-1 Red Star
1-0 Marek Hamsik(11′)
2-0 Dries Mertens(33′)
3-0 Dries Mertens(52′)
3-1 El Fardou Ben(57′)
FC Porto 3-1 Schalke
1-0 Eder Militao(52′)
2-0 Jesus Corona(55′)
2-1 Nabil Bentaleb(víti, 88′)
3-1 Moussa Marega(94′)
PSV 1-2 Barcelona
0-1 Lionel Messi(61′)
0-2 Gerard Pique(70′)
1-2 Luuk de Jong(83′)
Dortmund 0-0 Club Brugge