Strákarnir okkar hefja leik á Heimsmeistaramótinu á laugardag þegar liðið mætir Argentínu. Vel fer um strákana okkar sem komu til Rússlands á laugardag og er öll umgjörð fyrsta flokks.
Við komuna til Rússlands fór liðið í myndatöku hjá FIFA og þar virðist Ólafur Ingi Skúlason hafa stolið senunni.
Myndir af Ólafi hafa farið víða um netið þar sem hann var að gretta sig en Ólafur átti ekki alveg von á því.
Meira:
Fiðrildin fara að myndast þegar við ferðumst til Moskvu
,,Ég var beðinn um að fíflast af myndatökumanninum, ég gerði það. Ég hélt að þetta færi bara ofan í skúffu, svo var þetta mætt daginn eftir. Það er alltaf gaman,“ sagði Ólafur um málið.
,,Ég var ánægður með að fá að gera eitthvað öðruvísi. Það er búið að vera djöfulgangur á Twitter, fólk að líkja mér við Ólaf úr Frozen. Það er búið að vera létt yfir því.“