
Konan, Wendy Duffy frá West Midlands á Englandi, mun gangast undir meðferðina hjá Pegasos-klíníkinni í Sviss, en í umfjöllun Daily Mail, sem ræddi ítarlega við Wendy um þessa ákvörðun hennar í vikunni, er bent á að slík aðstoð sé ólögleg í Bretlandi.
Í viðtalinu sagði Duffy að hún sæi ekki lengur tilgang með lífinu eftir dauða sonar síns, Marcusar, árið 2022. Hann lést 23 ára að aldri eftir að hafa kafnað þegar matur festist í öndunarvegi hans.
Samkvæmt frásögn hennar hefur hún glímt við djúpa sorg síðan og gengist undir meðferðir árum saman án þess að ná bata. Eftir dauða hans reyndi hún að svipta sig lífi og var hún um tíma í lífshættu vegna sjálfsvígstilraunarinnar. Viðtalið var birt á miðvikudag og kom þá fram að dánaraðstoð væri fyrirhuguð í dag, föstudag.
Duffy sótti um aðstoð hjá Pegasos og fékk samþykki seint á síðasta ári. Hún hefur greitt um 10.000 pund, um 1,6 milljónir króna, fyrir þjónustuna og er hún búin að skrifa kveðjubréf til fjölskyldu og vina.
Fjölskylda hennar, þar á meðal fjórir bræður og tvær systur, er meðvituð um ákvörðunina.
„Ég mun hringja í þau þegar ég kem til Sviss,“ sagði hún. „Það verður erfitt símtal þar sem ég kveð og þakka þeim. En þau munu skilja. Þau vita.“
Duffy hefur jafnframt skipulagt útfararmál sín og óskað eftir því að ösku hennar verði dreift á sama stað og ösku sonar hennar.
Málið hefur vakið athygli í Bretlandi, ekki síst í ljósi umræðu um lögleiðingu dánaraðstoðar. Duffy hefur sjálf sagst vilja að slíkt úrræði væri í boði í heimalandi hennar svo hún þyrfti ekki að leita til Sviss.
Í viðtali Daily Mail kemur fram að það hafi ekki verið léttvæg ritstjórnarákvörðun að birta sögu Wendyar. Það hafi þó verið gert þar sem margir eru í sömu sporum og hún.
Umræðan um aðstoð við lífslok heldur áfram í Bretlandi í dag þegar málið verður tekið fyrir í lávarðadeildinni.
—
Ef einstaklingar glíma við sjálfsvígshugsanir er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa samband við Píeta-samtökin sem veita ókeypis ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.