fbpx
Miðvikudagur 15.apríl 2026
Pressan

Hneyksli á Everest: Ferðamenn gerðir veikir til að svíkja út milljarða

Pressan
Miðvikudaginn 1. apríl 2026 15:30

Mount Everest. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dæmi eru um að ferðamenn sem ætluðu að ganga upp á Mount Everest hafi verið látnir veikjast svo hægt væri að kalla út dýrar björgunarþyrlur og rukka tryggingafélög um himinháar fjárhæðir.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í umfjöllun Kathmandu Post, sem Daily Mail vísar til, og er samkvæmt niðurstöðum rannsóknar Miðlægrar rannsóknarskrifstofu nepölsku lögreglunnar (CIB) á umfangsmiklu tryggingasvindli á meðal hóps leiðsögumanna á svæðinu.

Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar eru leiðsögumenn og aðrir aðilar í ferðaþjónustu ekki aðeins sagðir hafa reynt að hræða ferðamenn með væg einkenni hæðarveiki, heldur í sumum tilfellum reyna að gera ástand þeirra verra. Í að minnsta kosti einu máli var lyftidufti blandað í mat ferðamanna til að gera þá líkamlega veika.

Með því að gera ferðamennina veika gátu svikararnir búið til tilefni fyrir kostnaðarsaman þyrluflutning og blásið upp tryggingakröfur.

Talið er að svikararnir hafi með þessum hætti náð um sem nemur um tveimur milljörðum króna af tryggingarfélögum.

Þá segja rannsakendur að ferðamönnum með væg einkenni hafi verið gefið óhóflegt magn af vatni og lyfjum til að kalla fram einkenni sem réttlættu tafarlausan flutning með þyrlu. Alls hafa yfir 300 staðfest svikamál komið upp á árunum 2022 til 2025.

Einkenni hæðarveiki geta komið fram í um 3.000 metra hæð og eru einkennin oftar en ekki höfuðverkur, náladoði og lækkuð súrefnismettun. Í flestum tilvikum nægir hvíld, vökvun og hægfara niðurleið. Samkvæmt CIB voru leiðsögumenn og starfsfólk gististaða hins vegar hvött til að telja ferðamönnum trú um að tafarlaus sjúkrahúsflutningur væri eina leiðin til að tryggja öryggi þeirra.

Þrátt fyrir að ein þyrla geti flutt marga farþega í einni ferð voru reikningar sendir eins og hver einstaklingur hefði þurft sérflug. Þannig gat ferð sem kostaði til dæmis 500 þúsund krónur verið reikningsfærð í eina og hálfa milljón króna. Þá kom einnig fram í niðurstöðunum að skýrslur hafi verið útbúnar með stafrænum undirskriftum lækna sem komu aldrei að málunum, oft án vitundar þeirra.

Manoj Kumar KC, yfirmaður CIB, segir skort á refsingu hafa skapað kjöraðstæður fyrir svindlið. „Þegar ekkert er aðhafst gegn glæpum dafna þeir. Tryggingasvindlið dafnaði af þeim sökum.“

Fyrr í þessum mánuði voru 32 einstaklingar ákærðir í tengslum við málið. Níu hafa verið handteknir en hinir eru sagðir á flótta. Meðal þeirra ákærðu eru rekstraraðilar og starfsmenn þriggja þyrlufyrirtækja, auk stjórnenda frá þremur sjúkrahúsum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Það sem dauðadæmd kona játaði hjá lögreglunni sækir enn á fyrrum lögreglumann

Það sem dauðadæmd kona játaði hjá lögreglunni sækir enn á fyrrum lögreglumann
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kúba undirbýr sig undir árás frá Bandaríkjunum – „Ef við þurfum að deyja, þá deyjum við“

Kúba undirbýr sig undir árás frá Bandaríkjunum – „Ef við þurfum að deyja, þá deyjum við“