fbpx
Föstudagur 17.apríl 2026
Pressan

Fullur iðrunar áður en hann var tekinn af lífi í gærkvöldi

Pressan
Fimmtudaginn 12. mars 2026 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fangelsisyfirvöld í Texas tóku í gærkvöldi hinn 51 árs gamla Cedric Ricks af lífi. Ricks var dæmdur til dauða fyrir að stinga kærustu sína, Roxann Sanchez, og átta ára son hennar, Anthyny Figueroa, til bana árið 2013. Þá reyndi hann að drepa tólf ára son hennar, Marcus Figueroa, en hann komst lífs af en særðist alvarlega.

Í frétt AP er vísað í dómskjöl málsins þar sem fram kemur að atburðarásin hafi byrjað þegar Ricks og Sanchez lentu í heiftarlegum rifrildum á heimili þeirra í Bedford á Dallas-Fort Worth-svæðinu.

Drengirnir, synir hennar úr fyrra sambandi reyndu að skakka leikinn, en Ricks náði í hníf úr eldhúsinu og réðst á Roxann. Eftir að hafa banað yngri syninum sneri hann sér að Marcus, sem talinn er hafa komist lífs af með því að þykjast vera látinn. Þegar Ricks yfirgaf vettvanginn tókst honum að hafa samband við lögreglu.

Áður en aftakan fór fram bað Ricks ítrekað afsökunar á gjörðum sínum við ættingja fórnarlambanna sem fylgdust með í gegnum glervegg í aftökusalnum.

„Ég vil segja að mér þyki leitt að hafa tekið Roxann og Anthony frá ykkur,“ sagði hann í lokaorðum sínum og beindi einnig orðum sérstaklega að Marcus sem var viðstaddur aftökuna. „Mér þykir leitt að hafa tekið mömmu þína og bróður frá þér.“

Með brostna rödd lýsti hann einnig þeirri von að ættingjar fórnarlambanna gætu einhvern daginn fyrirgefið honum. Hann sagðist vonast til að hitta Roxann og Anthony á himnum því þar gæti hann beðið þau afsökunar „augliti til auglits“.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kraftaverkabarnið handtekið nærri 40 árum síðar

Kraftaverkabarnið handtekið nærri 40 árum síðar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ísraelsmenn brjálaðir út í Spánverja

Ísraelsmenn brjálaðir út í Spánverja
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Djöfullinn er til, hann er innra með mér, og ég borðaði mömmu”

„Djöfullinn er til, hann er innra með mér, og ég borðaði mömmu”
Pressan
Fyrir 4 dögum

Björguðu 9 ára dreng sem hafði verið læstur inni í bíl í eitt og hálft ár

Björguðu 9 ára dreng sem hafði verið læstur inni í bíl í eitt og hálft ár
Pressan
Fyrir 4 dögum

Langur svefn getur leitt til þyngdartaps

Langur svefn getur leitt til þyngdartaps