fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
Pressan

B-manneskjur gætu verið í aukinni hættu á að fá hjartasjúkdóma

Pressan
Sunnudaginn 15. febrúar 2026 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svefn er í vaxandi mæli talinn vera hluti af almennu heilbrigði fólks. Vísindamenn beina auðvitað sjónum sínum að mataræði og hreyfingu en hafa í auknum mæli beint sjónum sínum að því hvort dægurrytminn geti gegnt hlutverki þegar kemur að hættunni á að fá hjarta- og æðasjúkdóma.

Í nýrri rannsókn var munurinn á A- og B-manneskjum rannsakaður. Notast var við gögn um 300.000 miðaldra og eldra fólks frá UK Biobank. Rannsóknin hefur verið birt í vísindaritinu Journal of the American Heart Association að sögn Health Day.

Þátttakendunum var skipt í hópa eftir því hvenær þeir voru vanir að fara í háttinn. Lítill hópur lýsti sér sem B-manneskjum, aðrir sem A-manneskjum og enn aðrir mitt á milli.

Vísindamennirnir segja að hjartaheilbrigði B-manneskjanna hafi oftar verið verra en hjá hinum.

Sina Kianersi, aðalhöfundur rannsóknarinnar, sagði í fréttatilkynningu að B-manneskjur tileinki sér almennt síðri venjur en aðrir.

B-manneskjur reyndust vera líklegri til að fá hjartaáfall og blóðtappa en fólk með venjulegar svefnvenjur. A-manneskjur komu aðeins betur út í þessu samhengi.

Rannsóknin leiddi einnig í ljós að 75% af hinni auknu áhættu B-manneskja átti rætur að rekja til lífsstíls þeirra því þær reyktu meira og mataræði þeirra var óhollara.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Walker kallar þetta gott
Pressan
Í gær

Sonurinn tekinn við: Sagður eiga milljarða og lúxuseignir um allan heim

Sonurinn tekinn við: Sagður eiga milljarða og lúxuseignir um allan heim
Pressan
Í gær

Gúgglaði Epstein klukkustund áður en lík hans fannst – Verslaði húsgögn frekar en að gæta kynferðisglæpamannsins

Gúgglaði Epstein klukkustund áður en lík hans fannst – Verslaði húsgögn frekar en að gæta kynferðisglæpamannsins
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta er nískasta fólkið samkvæmt stjörnumerkjunum

Þetta er nískasta fólkið samkvæmt stjörnumerkjunum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Á rigningardegi 1986 lenti verkfræðingur í vanda á bensínstöð – Í dag er lausn hans á vandanum í öllum bílum

Á rigningardegi 1986 lenti verkfræðingur í vanda á bensínstöð – Í dag er lausn hans á vandanum í öllum bílum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Átti í ástarsambandi við 44 árum eldri mann – Hvað ætlaði hún sér?

Átti í ástarsambandi við 44 árum eldri mann – Hvað ætlaði hún sér?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Verður tekinn af lífi á fimmtudaginn en hefur þó engan myrt – „Ég ætti ekki að deyja fyrir eitthvað sem ég gerði ekki“ 

Verður tekinn af lífi á fimmtudaginn en hefur þó engan myrt – „Ég ætti ekki að deyja fyrir eitthvað sem ég gerði ekki“