
Hann birti myndband á TikTOk þar sem hann sagði frá fimm hlutum sem hann ráðleggur fólki að hætta ef það vill tryggja sér heilbrigðara og ánægjulegra líf. Hann segist telja að fólk eigi mun meiri möguleika á að lifa lengur ef það fylgir ráðum hans.
„Fimm hlutir sem þú ættir að hætta fyrir fertugt – þrátt fyrir að það sé aldrei of seint að hætta,“ sagði hann að sögn Mirror.
Reykingar – Þetta er auðvitað eitt það augljósasta er varðar heilsuna. Levine sagði að það sé í sjálfu sér aldrei of seint að hætta að reykja en maður eigi samt ekki að bíða til sextugs með það. „Hættu núna,“ sagði hann.
Áfengisneysla – Næst beindi hann sjónunum að áfengisneyslu og benti á að það auki hættuna á krabbameini, sérstaklega hjá konum, hjartasjúkdómum og gáttatifi.
Fíkniefni – Levine nefndi einnig kannabis og önnur fíkniefni til sögunnar og benti á að kannabisneyslu auki líkurnar á hnignun hugrænnar getu og elliglöpum. Þá geti fíkniefni á borð við kókaín valdið banvænum hjartavandamálum.
Ofþjálfun – Of mikil hreyfing getur skaðað líkamann, sérstaklega langhlaup og það að lyfta mjög þungum lóðum að sögn Levine. Hann sagði þetta slíta mjöðmunum, hnjánum og fótum og auki hættuna á liðaverkjum. Langhlaup eykur einnig hættuna á gáttatifi að hans sögn. Hann ráðleggur fólki því að stunda hreyfingu með hóflegu álagi og ekki að lyfta mjög þungum lóðum.
Óhollur matur – Að lokum ráðleggur hann fólki að forðast ruslmat á borð við skyndibita. Hann bendir einnig á sykraða drykki sem eitthvað sem fólk á að forðast. „Þú ert fertugur núna, þú getur ekki lengur borðað allt sem þig langar í,“ sagði hann.
Síðan kom hann með lokaráð sitt um að fertugsaldurinn muni stýra því hvernig restin af ævinni verður: „Viltu 40 góð ár til viðbótar? Þá skaltu byrja núna.“