fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Pressan

Flugvél hrapaði í íbúahverfi á Tenerife

Pressan
Föstudaginn 5. júní 2026 18:00

Mynd: Youtube-skjáskot

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flugvél hrapaði í íbúahverfi á suðurhluta Tenerife skömmu eftir flugtak frá Tenerife South flugvellinum síðdegis í gær.

Flugvélin, sem var í æfingaflugi, hrapaði niður í götu í íbúabverfi skammt frá golfvellinum Amarillo Golf. Reyndi flugmaður neyðarlendingu áður en vélin brotlenti.

Canarian Weekly greinir frá og ræðir við sjónarvott, Jasmine Knight, ferðamann frá Northampton á Englandi. Hún segist hafa verið á gangi niður götuna með eiginmanni sínum og mági þegar flugvélin kom niður og stefndi beint í áttina að þeim. „Við urðum að flýja undan vélinni þegar hún lenti á ljósastaur og tré, þannig að hún stöðvaðist áður en hún lenti á okkur. Mér finnst ömurlegt að hugsa til þess hvað hefði getað gerst.“

Engin meiðsl á fólki virðast hafa orðið í þessu flugslysi því sjónvarvotturinn og samferðamenn hennar hjálpuðu tveimur flugmönnum út úr brakinu og virtist þá ekki hafa sakað. Lögregla og fleiri viðbragðsaðilar komu skömmu síðar á vettvang. Staðfest er að ekki voru aðrir í flugvélinni en flugmennirnir tveir.

Skráningarnúmer flugvélarinnar er EC-NME, en hún er af gerðinni Reims-Cessna F172M Skyhawk.

Sjá nánar um málið hér.

Breski fjölmiðillinn The Sun hefur einnig fjallað um málið og birti myndband frá vettvangi:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 7 klukkutímum

Ávextir og grænmeti geta aukið hættuna á lungnakrabbameini

Ávextir og grænmeti geta aukið hættuna á lungnakrabbameini
Pressan
Fyrir 12 klukkutímum

Sífellt fleiri Danir láta brenna lík sitt í pappaöskju

Sífellt fleiri Danir láta brenna lík sitt í pappaöskju
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Stóð í röð til að vera einn af þeim 1.000 sem sváfu hjá Bonnie Blue – Segir frá hvað stoppaði hann

Stóð í röð til að vera einn af þeim 1.000 sem sváfu hjá Bonnie Blue – Segir frá hvað stoppaði hann
Pressan
Í gær

Ný veira gæti borist úr matnum í augu

Ný veira gæti borist úr matnum í augu
Pressan
Í gær

Liggur þú á evrumynt? – Sumar geta verið mjög verðmætar

Liggur þú á evrumynt? – Sumar geta verið mjög verðmætar