
Hin 84 ára Judith Hamilton lýsir reynslu sinni í viðtali við breska blaðið The Mirror. Í viðtalinu kemur fram að hún hafi talið að sonur hennar, Alistair, 47 ára efnafræðikennari, væri í París að heimsækja vin þegar hann var í raun staddur í Basel í Sviss þar sem hann undirbjó að binda enda á líf sitt. Það reyndist vera síðasta samtal þeirra mæðgina.
Alistair lést árið 2023 á Pegasos-klíníkinni í Basel, eftir að hafa glímt við óútskýrð heilsufarsvandamál. Fjölskyldan vissi ekkert um ferð hans eða áform fyrr en eftir að hann hvarf sporlaust.
„Hann sagði mér að hann væri að heimsækja vin í París,“ rifjar móðir hans upp. „Ég talaði við hann eftir að hann hafði verið þar í nokkra daga. Hann sagðist ætla að vera lengur, en svo hætti hann skyndilega að svara símtölum og skilaboðum.“
Eftir að hafa haft samband við lögreglu kom í ljós, með hjálp bankaupplýsinga, að hann hafði ferðast til Sviss. Málið kallaði á aðkomu svissneskra yfirvalda, breska sendiráðsins og Interpol. „Það var martröð að fá upplýsingar,“ segir hún.
Samkvæmt reglum Pegasos-klíníkarinnar er gert ráð fyrir að einstaklingar upplýsi fjölskyldu sína um ákvörðun sína, jafnvel ekki liggi fyrir stuðningur. Judith segir að klíníkin hafi ekki leitað eftir staðfestingu frá nánustu aðstandendum.
Í kjölfarið heimsótti fjölskyldan klíníkina árið 2024 í tengslum við rannsókn breska sjónvarpsins ITV. Þar baðst fulltrúi Pegasos afsökunar og hét því að breyta verklagi, þannig að í framtíðinni yrði þess krafist að einstaklingar hefðu samband við aðstandendur í viðurvist starfsfólks áður en til lífsloka kæmi. Engar vísbendingar hafa komið fram um að klíníkin hafi brotið lög.
Hamilton segir þó að hún viti um fleiri sambærileg tilvik þar sem einstaklingar hafi látist á staðnum án vitundar aðstandenda.
Málið hefur vakið aukna umræðu um aðstoð við lífslok, sérstaklega eftir að önnur kona, Wendy Duffy, lést nýlega á sömu klíník. Hamilton segir það hafa vakið upp sársaukafullar minningar.
„Þetta er svo sorglegt fyrir fjölskyldurnar sem sitja eftir,“ segir hún. „Ég er ekki sú sama og áður. Sorgin í hjartu mínu er varanleg.“ Hún telur að fjölskyldur ættu ávallt að vera upplýstar, svo þær geti annaðhvort stutt ákvörðun ástvinar eða reynt að fá hann til að hætta við. „Við vorum svipt þeim möguleika,“ segir hún.
Ef einstaklingar glíma við sjálfsvígshugsanir er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa samband við Píeta-samtökin sem veita ókeypis ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.