
Hermaðurinn sem um ræðir heitir Gannon Ken Van Dyke, en hann notaði vefsíðuna Polymarket til að veðja á að Maduro yrði handtekinn.
Gannon þessi bjó yfir innherjaupplýsingum og var hann í hópi þeirra sem unnu að því að handsama forsetann og flytja hann til Bandaríkjanna. Á tímabilinu frá því snemma í desember og þar til snemma í janúar lagði hann þrettán sinnum undir og græddi samtals 400 þúsund dollara, tæplega 50 milljónir króna á núverandi gengi. Maduro var handtekinn í byrjun janúar.
Í frétt The Guardian kemur fram að dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hafi ákært Van Dyke fyrir meðal annars fjarskiptasvik, auk ólögmætrar notkunar á trúnaðarupplýsingum í eigin þágu. Verði hann fundinn sekur gæti hann átt yfir höfði sér allt að 60 ára fangelsi.
Málið hefur vakið talsverða athygli í Bandaríkjunum. Polymarket er skráð fyrirtæki í New York, en rekstur helsta veðmálavettvangs þess fer fram á netþjónum utan Bandaríkjanna. Af þeim sökum fellur starfsemin að hluta utan þeirra reglna sem kveða á um að fjármálafyrirtæki skuli staðfesta deili á viðskiptavinum sínum.
Spámarkaðir á borð við Polymarket hafa notið vaxandi vinsælda vestanhafs á undanförnum árum, en áætlað er að bandarískir notendur hafi lagt undir um 44 milljarða dala undir í slíkum veðmálum á síðasta ári.
Í yfirlýsingu sagði starfandi dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, Todd Blanche, að hermönnum væru treyst fyrir viðkvæmum og leynilegum upplýsingum til að tryggja árangur og öryggi í aðgerðum, en þeim væri stranglega bannað að nýta slíkar upplýsingar í fjárhagslegum tilgangi.
Forstjóri FBI, Kash Patel, tók í svipaðan streng á samfélagsmiðlum og sagði málið dæmi um misnotkun á stöðu til persónulegs ávinnings.
Forsvarsmenn Polymarket staðfestu í gær að þeir hefðu bent á umræddan notanda og látið vita af honum. Í yfirlýsingu fyrirtækisins kom fram að innherjaviðskipti ættu ekki heima á vettvangi Polymarket og að handtakan sýndi að eftirlitskerfi fyrirtækisins virkuðu.