
Þegar þeir komu heim blasti ófögur sjón við, Allen hafði farið ránshendi um húsið og rótað og gramsað í flestum hirslum. Hann hafði tekið skartgripi, reiðufé og þráðlausa AirPods.
Húsráðendur skoðuðu upptökur úr eftirlitsmyndavélum hússins og sáu að Allen hafði verið inn í húsinu kl.23.33.
Lögreglan kom að sjálfsögðu á vettvang og tókst henni að rekja slóð AirPodsanna til húss í Stanhope. Þar fann lögreglan Allen í felum uppi á lofti.
Hann var nýlega dæmdur í 26 mánaða fangelsi fyrir innbrotið að sögn Metro.
Húsráðendum þykir það ekki nóg miðað við að Allen hafði áður verið dæmdur 25 sinnum fyrir 55 brot.
En það var ekki nóg með að Allen hafi brotist inn hjá þeim seint um kvöld, því fyrr um daginn var einnig brotist inn hjá þeim. Sem sagt tvö innbrot á sama deginum. Fyrra innbrotið er óupplýst.