fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Voru blekktir til að berjast fyrir Rússa en snúa nú heim

Pressan
Mánudaginn 16. mars 2026 06:00

Rússneskir hermenn í Úkraínu. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjórir Suður-Afríkumenn, sem voru blekktir til að berjast með Rússum í Úkraínu, sneru nýlega heim.  Þeir voru í 17 manna hópi sem sendi neyðarkall til suðurafrísku ríkisstjórnarinnar í nóvember.

SABC skýrir frá þessu og segir að lögreglan hafi tekið á móti mönnunum þegar þeir lentu í Jóhannesborg. Samkvæmt suðurafrískum lögum er ríkisborgunum bannað að veita erlendum ríkjum hernaðaraðstoð.

Eftir að neyðarkall barst frá hópnum í nóvember ræddi Cyril Ramaphosa, forseti, málið við Vladímír Pútín, Rússlandsforseta. Eftir fundinn sagði suðurafríska forsetaembættið að forsetarnir hefðu heitið að styðja aðgerðir til að koma mönnunum heim til Suður-Afríku.

Suður-Afríka hefur reynt að taka sér stöðu sem hlutlaust land varðandi stríðið í Úkraínu en á sama tíma átt í góðum samskiptum við Moskvuvaldið.

Indland, Nepal og Sri Lanka segja einnig að ríkisborgarar þeirra hafi verið blekktir til að ganga í rússneska herinn og taka þátt í stríðinu í Úkraínu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Mesta manntal sögunnar er hafið – Tekur eitt ár

Mesta manntal sögunnar er hafið – Tekur eitt ár
Pressan
Í gær

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala
Pressan
Í gær

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“