fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Segir að kona sem sakaði Trump um brot gegn sér hafi fengið sáttagreiðslu frá dánarbúi Epsteins

Pressan
Föstudaginn 13. mars 2026 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þingmaðurinn Suhas Subramanyam varpaði sprengju á dögunum þegar hann fullyrti að dánarbú níðingsins Jeffrey Epsteins hafi greitt sáttagreiðslu til konu sem sakaði Donald Trump Bandaríkjaforseta um kynferðisbrot gegn sér.

Vísaði þingmaðurinn til vitnaskýrslu Richards Kahn, sem er fyrrverandi endurskoðandi Epstein. Kahn gaf skýrslu fyrir luktum dyrum á dögunum í tengslum við birtingu Epstein-skjalanna alræmdu. Má í skjölunum finna ásakanir í garð Donalds Trump Bandaríkjaforseta, þar með talið um kynferðisbrot. Eftir að Kahn gaf skýrslu ræddi Subramanyam við fjölmiðla og sagði:

„Við getum ekki farið út í smáatriði um allt sem kom fram, en við komumst meðal annars að því að það var annar þjóðhöfðingi sem mun hafa átt í fjármálaviðskiptum við Jeffrey Epstein. Sá var ekki bandarískur. Og svo fékk önnur manneskja, sem hafði ásakað Donald Trump, greidda sátt úr dánarbúi Jeffrey Epsteins. Við höfum staðfest það.“

Ekki er víst hvaða konu er um að ræða, en þær hafa nokkrar sakað forsetann um brot gegn sér. Margir velta því þó fyrir sér hvort hér sé um að ræða konu, sem aldrei hefur verið nafngreind, sem heldur því fram að Trump hafi reynt að þvinga hana til að veita sér munnmök á níunda áratug síðustu aldar. Hún hafi verið unglingur á þessum tíma, um 13–15 ára, og hafi Epstein komið henni í kynni við Trump. Ásakanir konunnar voru ekki birtar fyrr en nýlega eftir harða baráttu þingmanna demókrata sem töldu að dómsmálaráðuneytið hefði haldið eftir skjölum sem tengdust forsetanum. Eftir mikið þras gekkst ráðuneytið loks við því að skjöl vantaði, en sagði það hafa gerst fyrir mistök þar sem skjölin hafi ranglega verið merkt sem tvírit. Varaði dómsmálaráðuneytið þó við því að skjölin kynnu að innihalda ofsafengnar og ósannar ásakanir gegn forsetanum og að allar yfirlýsingar ónefndu konunnar væru með öllu tilhæfulausar.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Mesta manntal sögunnar er hafið – Tekur eitt ár

Mesta manntal sögunnar er hafið – Tekur eitt ár
Pressan
Í gær

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala
Pressan
Í gær

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“