fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Hafnaði 4500 milljóna boði í húsið

Pressan
Sunnudaginn 15. mars 2026 20:30

Húsið stendur eitt á milli tveggja nýrra hverfa.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölskylda sem hafnaði boði upp á sem svarar til 4500 milljóna króna stendur föst á sínu og hyggst ekki flytja úr húsinu sínu en boðinu var ætlað að fá fjölskylduna til að selja húsið.

Flestir hefðu eflaust pakkað svo hratt niður að blekið náði ekki að þorna áður þeir voru fluttir úr húsinu. En það gerði Zammit-fjölskyldan ekki. Hún valdi að búa áfram í húsinu á meðan heilt hverfi var byggt upp í kringum hana.

Þetta gerðist í Quakers Hill, nærri Sydney í Ástralíu.

Sagan um Zammit-fjölskylduna hefur ratað til margra landa og vakið mikla athygli því ótrúlegt að svo háu boði hafi verið hafnað. Allir nágrannar fjölskyldunnar seldu húsin sín og fluttu en fjölskyldan ákvað að sitja sem fastast og er hús hennar nú eins og græn eyja í hafsjó húsa sem eru öll eins.

Boð upp á sem svarar til 4,5 milljarða króna fyrir hús og 20.000 fermetra lóð hlýtur að teljast ansi gott en samt sem áður dugði það ekki til að sannfæra fjölskylduna um að selja.

Húsið er nú nánast umkringt fjölda grárra húsa sem teygja sig allt að girðingunni umhverfis húsið.

En fjölskyldan nýtur þess að vera með 200 metra langa innkeyrslu og risastóra garð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Mesta manntal sögunnar er hafið – Tekur eitt ár

Mesta manntal sögunnar er hafið – Tekur eitt ár
Pressan
Í gær

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala
Pressan
Í gær

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“