fbpx
Laugardagur 18.apríl 2026
Fókus

Beggi með ráð um hvernig þú bregst við áliti annarra – „Þetta er kannski ekki vinsæl skoðun“

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 17. mars 2026 06:30

Beggi Ólafs. Mynd: Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bergsveinn Ólafsson, kallaður Beggi Ólafs, sálfræðingur er búsettur í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Beggi hefur mikinn áhuga á heilsu bæði andlegri og líkamlegri. Hann birtir reglulega færslur á Instagram um hvernig hann hámarkar hamingju sína og vellíðan, hvernig hann eykur afköst og nær árangri og hvernig hann hefur samskipti við annað fólk.

Í nýjustu færslu sinni fer Beggi yfir hvernig við eigum það til að móðgast yfir því sem einhver segir við okkur eða segir ekki, eða gerir okkur.

„Þetta er kannski ekki vinsæl skoðun, en enginn getur móðgað þig nema þú sjálfur. Leyfið mér að útskýra. Einhver sagði eða gerði eitthvað sem varð til þess að móðga þig og þér fannst þú vanmetinn. Það var vegna þess að þú brást við en svaraðir ekki. Þessi tilfinning varði svo hjá þér kannski þann dag, í nokkra daga eða jafnvel mánuð þar sem þú hélst einhverju innra með þér af því þú brást svona við.“

Beggi segir að ástæðan fyrir að við bregðumst þannig við sé vegna fyrri reynslu eða einhvers í fortíð okkar, sem fær okkur til halda að heimurinn sé vondur, að við séum einskis virði,, enginn virði okkur og við eigum ekki að treysta neinum. Hann segir slík viðbrögð ekki holl fyrir okkur. En hvað eigum við að gera í staðinn?

„Í lok dags getur enginn móðgað þig eða sýnt þér vanvirðingu nema þú sjálfur. Þar liggur þinn kraftur. Þú ákveður hvaða áhrif þetta hefur. Eitthvað gerist og þú sýnir líkamleg viðbrögð, en þú ákveður hvað þú ætlar að gera með þau.

Þetta getur falist í að segja eitthvað við hina manneskjuna, þetta getur falist í því að þessi skilaboð frá annarri manneskju hafi allt með hana að gera og ekkert að gera með þig. Að velja þína eigin meiningu í stað þess að bregðast við mun algjörlega breyta lífi þínu. Og það er hæfileiki sem þú getur þjálfað. Og með því að velja þína eigin meiningu getur enginn móðgað þig, ögrað þér eða vanvirt þig.

Í lok dags þá ert þú við stjórn. Og því fyrr sem þú áttar þig á því því fyrr mun líf þitt algjörlega breytast.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Rekinn korter í HM
Fókus
Fyrir 2 dögum

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi
Fókus
Fyrir 2 dögum

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Þriðja dóttirin fædd

Þriðja dóttirin fædd
Fókus
Fyrir 1 viku

Yfirgaf eiginmanninn fyrir „draumaprinsinn“ en ekki var allt sem sýndist

Yfirgaf eiginmanninn fyrir „draumaprinsinn“ en ekki var allt sem sýndist
Fókus
Fyrir 1 viku

Mátaði bikiní og fagnaði 61 árs afmælinu sínu

Mátaði bikiní og fagnaði 61 árs afmælinu sínu