fbpx
Laugardagur 11.apríl 2026
Pressan

Par dæmt í fangelsi fyrir að eltihrella þroskahamlaðan starfsmann kjúklingastaðar

Pressan
Mánudaginn 16. mars 2026 22:00

Jade Stone og Tryston Cullon. Lögreglumynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þau Jade Stone og Trysten Cullon, í borginni Charlotte í Norður-Karólínu, BNA, hlutu nýlega fangelsisdóma fyrir ofsóknir gegn þroskaheftum starfsmanni kjúlkingastaðar í borginni, Chick-fil-A.

Ákærðu eru bæði 27 ára gömul en atlagan gegn starfsmanninum stóð yfir dagana 5. til 8. september árið 2024. Þau Jade og Trysten voru á höttunum eftir peningum fyrir fíkniefnum og ákváðu að fá síma mannsins lánaðan til að hringja úr honum. Starfsmaðurinn hét Christopher Tsoulous og var 37 ára gamall, með hjarta úr gulli, að sögn kunnugra, en með þroska á við grunnskólabarn. Þau reyndu árangurslaust að komast yfir fjármuni mannsins með því að opna greiðsluöppin á símanum hans en án árangurs.

Eftir það fóru þau að senda foreldrum hans hótanir og ásakanir. Sökuðu þau Christopher um að tæla táningsstúlkur og vera vændiskaupandi. Þau sögðust myndu greina vinnuveitendum hans frá hegðun hans ef þau fengju ekki 300 dollara greiðslu.

Þó að þessi atlaga stæði aðeins yfir í nokkra daga dró hún Christopher til dauða. Hann skaut sig til bana á veröndinni fyrir utan heimili sitt. Ástvinir hans greindu frá því við réttarhöldin að hann hafi ekki getað skilið að hann gerði ekkert rangt og var aðeins þolandi lyga og fáránlegra ásakana tveggja fíkla í örvæntingu.

Jade Stone og Trysten Cullon játuðu brot sín og lýstu yfir iðrun við réttarhöldin. Jade var dæmd í 27 mánaða fangelsi en Trysten í 41 mánaða fangelsi. Hann fékk þyngri dóm þar sem hann var með dóma að baki en Jade með hreina sakaskrá.

Málið þykir vera mikill harmleikur í Charlotte og margir harma dauða vingjarnalega starfsmannsins á kjúklingastaðnum, Christopher Tsoulous.

Nánar má lesa um málið hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Dóttir krefst svara eftir dularfullt hvarf móður sinnar

Dóttir krefst svara eftir dularfullt hvarf móður sinnar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Dularfull andlát og hvörf níu vísindamanna með tengsl við NASA og kjarnorkuleyndarmál vekja áhyggjur

Dularfull andlát og hvörf níu vísindamanna með tengsl við NASA og kjarnorkuleyndarmál vekja áhyggjur
Pressan
Fyrir 4 dögum

Beið í meira en hálfa öld eftir að ná fram hefnd eftir atvik í búningsklefa

Beið í meira en hálfa öld eftir að ná fram hefnd eftir atvik í búningsklefa
Pressan
Fyrir 4 dögum

Dreymir þig um að flytja út? Þessi átta lönd greiða þér fyrir það

Dreymir þig um að flytja út? Þessi átta lönd greiða þér fyrir það
Pressan
Fyrir 5 dögum

Sálfræðingur segir að fólkið í hamingjusömustu samböndunum tali daglega um þetta

Sálfræðingur segir að fólkið í hamingjusömustu samböndunum tali daglega um þetta
Pressan
Fyrir 5 dögum

Það hversu oft þú borðar getur haft áhrif á heilann

Það hversu oft þú borðar getur haft áhrif á heilann