fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Hlúði að „broddgelti“ alla nóttina – Komst að sannleikanum hjá dýralækninum

Pressan
Mánudaginn 16. mars 2026 06:30

Hann vildi ekki borða né drekka.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Allt hófst þetta þegar góðhjörtuð kona sá broddgaltarunga á gangstéttinni. Hún var dýravinur og hikaði auðvitað ekki við að koma litla greyinu til bjargar.

Hún fór heim með dýrið, fóðraði pappakassa með dagblöðum og setti kattamat ofan í svo broddgölturinn gæti borðað eitthvað og náð sér.

En þegar kom fram á morgun hafði dýrið ekki hreyfst og hvað þá snert matinn.

Konan hafði miklar áhyggjur af dýrinu og flýtti sér á Lower Moss Wood Nature Reserve and Wildlife sjúkrahúsið með það.

Þegar Janet Kotze, dýralæknir, opnaði kassann, sem dýrið var í, sá hún strax að eitthvað mikið var að. Þyngdin passaði ekki og broddgölturinn virtist vera óvenjulega dúnkenndur.

Það tók hana ekki margar sekúndur að  átta sig á staðreyndum málsins – Þetta var ekki dýr, heldur mjúkur dúskur af prjónaðri húf.

Konan skammaðist sín mjög  og lét sig hverfa mjög hljóðlega með pappakassann.

Sagan fór á mikið flug og margir hafa hlegið að konunni. En hjá dýralækninum er litið öðruvísi á þetta og hefur konunni verið hrósað fyrir að vera með hjartað á réttum stað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Mesta manntal sögunnar er hafið – Tekur eitt ár

Mesta manntal sögunnar er hafið – Tekur eitt ár
Pressan
Í gær

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala
Pressan
Í gær

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“