fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Læknir varar við – Þess vegna máttu aldrei halda prumpi í þér

Pressan
Laugardaginn 14. mars 2026 20:20

Hver prumpaði?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þú finnur að loftið vill komast út um afturendann en þú ert innan um margt fólk og hefur áhyggjur af að hávaði fylgi ef þú hleypir því út, eða það sem er enn verra – óþefur.

En hvað sem öllu líður, þá verður þú að gera þetta – við gerum þetta jú öll saman.

Breski læknirinn Karan Raj, birti færslu um þetta á TikTok nýlega og sagði að fólk prumpi að meðaltali 14 sinnum á dag. The Sun skýrir frá þessu.

„Þeim mun fleiri, þeim mun betra. Ef einhver segir þér að hann prumpi ekki, þá er hann að ljúga og þú ættir að segja það um leið og benda á að ef svo er, þá hafi hann þarmastíflu sem er læknisfræðilegt neyðartilfelli,“ sagði hann.

Hann sagði einnig að meðalprumpið innihaldi loft sem dugir til að fylla millistóra blöðru.

„Ef þú heldur prumpi of lengi í þér, þá getur það endað í blóðrásinni og þú andað því út um munninn,“ sagði hann einnig og eins og gefur að skilja er það ekki eftirsóknarvert að senda slíkan óþef út um munninn.

Clare Collins, prófessor í næringarfræði við University of Newcastle, sagði að það að halda lofti of lengi í sér hafi í för með sér að þarmaloft safnist saman og sleppi að lokum stjórnlaust út.

„Fyrsta prump dagsins er venjulega það stærsta. 75% af prumpunum eru framleidd af bakteríum í ristlinum. 25% af prumpum er loft, sem þú andar að þér, sem þú ropar ekki og uppleyst gas kemur úr blóðinu og inn í þarmana. 99% af prumpi eru lyktarlausar lofttegundir eins og vetni, koldíoxíð og metan,“ sagði Collins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Mesta manntal sögunnar er hafið – Tekur eitt ár

Mesta manntal sögunnar er hafið – Tekur eitt ár
Pressan
Í gær

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala
Pressan
Í gær

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“