fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Marjorie Taylor Greene með hrollvekjandi viðvörun varðandi Trump – „Ég held að hann sé ekki að grínast“

Pressan
Laugardaginn 14. mars 2026 17:30

Marjorie Taylor Greene. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Marjorie Taylor Greene var lengi vel einn harðasti stuðningsmaður Donald Trump en það slettist heldur betur upp á vinskapinn fyrir nokkrum mánuðum eftir að hún byrjaði að gagnrýna forsetann og stefnu hans í ýmsum málum, þá sérstaklega varðandi birtingu Epsteinskjalanna.

Greene sat í fulltrúadeildinni fyrir Repúblikana en sagði af sér þingmennsku á síðasta ári. HuffPost segir að hún hafi nýlega varað samlanda sína við og sagt að þeir verði að taka það alvarlega þegar Trump ræðir um að bjóða sig fram til forseta í þriðja sinn. Það er óheimilt samkvæmt stjórnarskránni.

Greene ræddi nýlega við Megyn Kelly hjá SiriusMX. Greene sagði að Trump hafi oft sagt að hann telji að hann komist ekki í himnaríki og velti því upp hvað þetta segði um andlegt ástand manns „sem sé kominn að leiðarenda í lífinu“.

Trump hefur oft rætt það opinberlega að hann gæti boðið sig fram í þriðja sinn. Í lok febrúar sagðist hann „eiga skilið“ að sitja þriðja kjörtímabilið í forsetaembættinu.

Hann er nú þegar farinn að selja varning tengdan forsetakosningunum 2028 og nánir samstarfsmenn hans, þar á meðal Steve Bannon, hafa spáð því að hann muni bjóða sig fram.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Mesta manntal sögunnar er hafið – Tekur eitt ár

Mesta manntal sögunnar er hafið – Tekur eitt ár
Pressan
Í gær

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala
Pressan
Í gær

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“