fbpx
Laugardagur 11.apríl 2026
Pressan

Tucker Carlson segir að dómsmálaráðuneytið sé að rannsaka hann vegna meintra tengsla við Íran – „Ég má tala við hvern sem er“

Pressan
Mánudaginn 16. mars 2026 12:15

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hægrisinnaði fjölmiðlamaðurinn Tucker Carlson telur sig ekki eiga gott í vændum og segir að bandaríska dómsmálaráðuneytið sé að undirbúa ákæru gegn honum. Carlson deildi myndbandi á samfélagsmiðlinum X um helgina þar sem hann sagði að rafræn samskipti hans hefðu verið rannsökuð vegna ásakana um að hann hefði verið að ræða við fólk í Íran áður en innrás Bandaríkjanna hófst þar í landi.

„Glæpurinn sem um ræðir væri, að því er virðist, brot gegn lögum um erlenda umboðsmenn eða eitthvað í þá áttina, að hafa starfað sem útsendari erlends ríkis,“ sagði fjölmiðlamaðurinn sem hefur talað opinskátt um andstöðu sína við hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna í Íran. Carlson segist ekki hafa áhyggjur af þessari rannsókn enda hafi hann engin lög brotið og aldrei þegið greiðslur fyrir að ganga hagsmuna erlends ríkis.

„Það er vinnan mín að ræða við alla á öllum tímum og reyna að varpa ljósi á það sem er að gerast í heiminum. Það er bókstaflega vinnan mín og ég er ekkert að fara að hætta því og ætti, að mínu mati, ekki að gera það. Ég er líka Bandaríkjamaður. Ég má tala við hvern sem er. Ég hef engin leyndarmál til að opinbera. Svo lagalega tel ég að þetta mál þeirra sé fásinna og ég efast um að það verði eitthvað úr því.“

Carlson hefur ítrekað gagnrýnt Donald Trump Bandaríkjaforseta fyrir stríðið við Íran sem hann segir ógeðfellt. Þetta hefur meðal annars orðið til þess að Trump, sem áður leit á Carlson sem náinn stuðningsmann, hefur lýst því yfir að Carlson sé ekki lengur hluti af MAGA-hreyfingunni.

„Tucker hefur villst af réttri braut. Ég vissi það fyrir löngu og hann er ekki MAGA. MAGA er að bjarga landinu okkar. MAGA er að gera þjóð okkar stórfenglega aftur. MAGA setur Bandaríkin í fyrsta sæti en Tucker gerir það ekki. Og Tucker er ekki nógu greindur til að sjá það.“

Carlson mun hafa lýst sig mótfallinn stríðinu á þremur fundum í Hvíta húsinu áður en hernaðaraðgerðirnar hófust þann 28. febrúar.

Independent greinir frá

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Dóttir krefst svara eftir dularfullt hvarf móður sinnar

Dóttir krefst svara eftir dularfullt hvarf móður sinnar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Dularfull andlát og hvörf níu vísindamanna með tengsl við NASA og kjarnorkuleyndarmál vekja áhyggjur

Dularfull andlát og hvörf níu vísindamanna með tengsl við NASA og kjarnorkuleyndarmál vekja áhyggjur
Pressan
Fyrir 4 dögum

Beið í meira en hálfa öld eftir að ná fram hefnd eftir atvik í búningsklefa

Beið í meira en hálfa öld eftir að ná fram hefnd eftir atvik í búningsklefa
Pressan
Fyrir 4 dögum

Dreymir þig um að flytja út? Þessi átta lönd greiða þér fyrir það

Dreymir þig um að flytja út? Þessi átta lönd greiða þér fyrir það
Pressan
Fyrir 5 dögum

Sálfræðingur segir að fólkið í hamingjusömustu samböndunum tali daglega um þetta

Sálfræðingur segir að fólkið í hamingjusömustu samböndunum tali daglega um þetta
Pressan
Fyrir 5 dögum

Það hversu oft þú borðar getur haft áhrif á heilann

Það hversu oft þú borðar getur haft áhrif á heilann