fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
Pressan

„Þetta geri ég aldrei í svefnherberginu“

Pressan
Laugardaginn 14. mars 2026 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kynlíf snýst oft um tengsl, langanir og persónuleg mörk. Hjá flestum virkar þetta vel en hjá sumum getur það valdið miklu drama í stefnumótalífinu ef gagnaðilinn hefur einhverja ákveðna ósk í kynlífinu, ósk sem fellur ekki vel í geð hins aðilans.

Þetta getur ónafngreind kona á þrítugsaldri borið vitni um. Eftir að hún skýrði frá einu ákveðnu atriði, sem hún gerir ekki í kynlífinu, hefur hún fengið að heyra marga neikvæða hluti og margar þeirra kvenna sem hún hefur átt í sambandi við, taka þessu ekki vel.

Konan segist vera tvíkynhneigð og að hún hafi átt í nánast jafnmörgum ástarsamböndum við karla og konur. Hún segir að þegar kemur að kynlífi með konum sé eitt sem hún vilji ekki gera og það er að veita munnmök og hún vill helst ekki þiggja munnmök frá konum.

Hún segir að þetta snúist ekki um eina slæma upplifun því í hvert sinn sem hún hafi stundað kynlíf með konum, hafi henni fljótt farið að líða illa vegna tilhugsunarinnar um bragð og lykt.

Hún segist ekki finna fyrir þessu þegar hún stundar kynlíf með körlum.

Hún segir að þegar hún segi frá þessum mörkum bregðist sumir mjög illa við. Hún hafi verið kölluð „koddaprinsessa“ eða gefið hafi verið í skyn að hún sé ekki í „alvöru“ tvíkynhneigð.

Þetta hefur gert stefnumótalíf hennar flóknara því margar konur telja munnmök eðlilegan hluta af kynlífinu. Hugmyndir hennar um gott kvöld eru öðruvísi. Hún segist kjósa kossa, snertingu, að látið sé vel að brjóstum hennar og að gagnkvæm örvun eigi sér stað án þess að til munngælna þurfi að koma.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Óvæntur glaðningur fylgdi gjafasæðinu

Óvæntur glaðningur fylgdi gjafasæðinu
Pressan
Í gær

Þessi þrjú eldhústæki ættu aldrei að vera í sambandi þegar þau eru ekki í notkun – Geta skapað mikla eldhættu

Þessi þrjú eldhústæki ættu aldrei að vera í sambandi þegar þau eru ekki í notkun – Geta skapað mikla eldhættu
Pressan
Í gær

Segir að Pútín hafi málað sig út í horn

Segir að Pútín hafi málað sig út í horn
Pressan
Í gær

Svona er hægt að sjóða kartöflur hraðar

Svona er hægt að sjóða kartöflur hraðar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona lengi er hægt að geyma kjöt í frysti

Svona lengi er hægt að geyma kjöt í frysti
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta finnst gáfuðu fólki afslappandi en venjulegt fólk þolir þetta ekki

Þetta finnst gáfuðu fólki afslappandi en venjulegt fólk þolir þetta ekki
Pressan
Fyrir 2 dögum

Læknir varar við vinsælum morgunmat – Getur verið heilsunni hættulegur

Læknir varar við vinsælum morgunmat – Getur verið heilsunni hættulegur
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þanin(n) og þreytt(ur)? – Þessir ávextir geta hjálpað

Þanin(n) og þreytt(ur)? – Þessir ávextir geta hjálpað