fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Þess vegna ruglumst við á nöfnum ástvina okkar

Pressan
Laugardaginn 14. mars 2026 11:30

Ætli þau ruglist stundum á nöfnum?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hefur þú lent í því að rugla saman nöfnum ástvina þinna? Ef svo er, þá veltir þú örugglega fyrir þér á þeirri stundu hvernig þú gast ruglað nöfnunum á fólki sem þú þekkir svo vel.

En þetta er ekki neitt til að hafa áhyggjur af og þýðir ekki að þú sért að gera lítið úr fólkinu í kringum þig. Þetta eru miklu algengari mistök en þú heldur.

Þú varst reiður við mömmu þína þegar hún kallaði þig nafni bróður þíns en þegar þú lentir í þessu, runnu á þig tvær grímur.

Þú heldur kannski að þú sért orðinn hjartalaus eða með elliglöp á byrjunarstigi. En engar áhyggjur, það er ekki svo. Svona lagað gerist aðallega þegar við erum í aðstæðum þar sem tilfinningaleg nánd er til staðar, heilinn er á sjálfstýringu.

Þvert á það sem margir halda, þá tengist þetta ekki minninu og þetta kemur fyrir ungt og gamalt fólk og getur gerst þegar einbeitingin er mikil.

Vísindamenn segja að heilinn skipuleggi upplýsingar eftir ákveðnu skipulagi þannig að fólk, sem hefur svipaða stöðu í lífi okkar t.d. börn, maki og nánir vinir, er sett saman í flokk.

Þegar við leitum að nafni, virkjar heilinn þennan flokk áður en hann velur orðið. Afleiðing af þessu getur orðið að líkt nafn kemur upp í staðinn fyrir rétta nafnið. Þetta eru ekki mistök, heldur bein afleiðing af nánum tengslum.

Kannski er smávegis kaldhæðni í því að við ruglum sjaldan saman nöfnum á fólki sem við höfum ekki sterk tilfinningaleg tengsl við. Það getur þó gerst þegar við verðum fyrir truflun eða nöfnin líkjast hvert öðru. Að rugla nöfnum er því meira merki um náin tengsl og ást en athyglisskort.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Mesta manntal sögunnar er hafið – Tekur eitt ár

Mesta manntal sögunnar er hafið – Tekur eitt ár
Pressan
Í gær

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala
Pressan
Í gær

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“