fbpx
Föstudagur 17.apríl 2026
Fókus

Hvetja Breta til að leita skjóls á Íslandi ef stríð brýst út

Fókus
Mánudaginn 16. mars 2026 21:00

Mynd: Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er ekki friðvænlegt í heiminum nú um stundir, Úkraínustríðið hefur staðið yfir í meira en fjögur úr og stríð geisar í Miðausturlöndum. Breski fjölmiðillinn Mirror tiltekur nokkur lönd sem gott væri fyrir Breta að flýja til ef styrjöld brytist út á Bretlandi.

Er bent á í greininni að Bretar geti ferðast til allmargra landa án vegabréfsáritunar og dvalist þar þrjá mánuði í senn. Efst á blaði sem vænlegasti kosturinn fyrir þá sem leita að friði og stöðugleika er Ísland.

Bent er á að Ísland hafi hvað eftir annað verið metið friðsælasta land í heimi í árlegri úttekt Global Peace Index, allt frá árinu 2008. Segir að glæpatíðni sé afar lág í landinu og enginn her, enda hafi ríkið lengi lagt áherslu á hlutleysi og friðsamleg samskipti við önnur ríki. Ísland sé enda eini meðlimur NATO sem ekki sé með her en landhelgisgæsla sinni vörnum á sjó og í lofti. Breskir ríkisborgarar geti dvalist 90 daga í einu á Íslandi sem hluta af Schengen-svæðinu.

Landið sé fámennt og afskekkt í Norður-Atlantshafinu, langt frá öllum mögulegum átakasvæðum.

Meðal annarra friðsælla ríkja sem mælt er með að Bretar flýi til á styrjaldartímum eru Írland, Nýja-Sjáland, Portúgal og Sviss.

Sjá nánar hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

„Einhver lest sem við settum í gang og fór algjörlega út af sporinu“

„Einhver lest sem við settum í gang og fór algjörlega út af sporinu“
Fókus
Í gær

„Ég er ekki að fara að taka yfir heiminn – ég er hér til að hjálpa“

„Ég er ekki að fara að taka yfir heiminn – ég er hér til að hjálpa“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Leikkona sakar Katy Perry um kynferðisbrot – „Nuddaði viðbjóðslegu píkunni sinni á andlitið á mér“

Leikkona sakar Katy Perry um kynferðisbrot – „Nuddaði viðbjóðslegu píkunni sinni á andlitið á mér“
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Aldur hefur ekkert að gera með hvort þú náir vel saman við einhverja manneskju“

„Aldur hefur ekkert að gera með hvort þú náir vel saman við einhverja manneskju“
Fókus
Fyrir 1 viku

Afrika Bambaataa er látinn

Afrika Bambaataa er látinn
Fókus
Fyrir 1 viku

Vinsæll rithöfundur stígur fram eftir 23 ára nafnleysi eftir að hún var sökuð um að vera þrír karlmenn

Vinsæll rithöfundur stígur fram eftir 23 ára nafnleysi eftir að hún var sökuð um að vera þrír karlmenn